Læknablaðið - 01.12.1962, Page 68
182
LÆKNABLAÐIÐ
berum heilbrigðisstarfsmönn-
um.
F. ]i. stjórnar Læknafél. Islands.
Óskar Þórðarson, form.
Til stjórnar BHM,
Reykjavík.“
L.R. hefur tilkynnt Félagi vf-
irlækna með bréfi dags. 20/7
1962, að aðstoðar-yfirlæknar,
deildar- og aðstoðarlæknar við
ríkisstofnanir, Ileilsuverndar-
stöð Rvíkur og Borgarspítal-
ann, alls 31 að tölu, hafi sagl
upp starfi frá 1. ágúst. Var upp-
sagnarfresturinn framlengdur
til 1. nóv. skv. úrskurði dóms-
og kirkjumálaráðuneytisins.
Læknafélag Austurlands var
stofnað hinn 29/9 1961. For-
maður er Þorsteinn Sigurðsson
héraðslæknir, gjaldkeri Heimir
Bjarnason liéraðslæknir, en
meðstjórnandi Haraldur Sig-
urðsson héraðslæknir.
Félag yfirlækna var stofnað
haustið 1961. Fonnaður er Ósk-
ar Þórðarson, meðstjómendur
Davíð Davíðsson og Níels Dung-
al.
Félag meltingarsérfræðinga
var stofnað á s.l. hausti. For-
maður þess er Bjarni Bjarna-
son, ritari Ólafur Jónsson og
gjaldkeri Tómas Á. Jónasson.
Félag háls-, nef- og eyrna-
lækna í Reykjavik var stofnað
23. nóv. 1961.
Félag sjúkrasamlagslækna
i Reykjavík var stofnað á þessu
ári. Formaður er Jóhannes
Björnsson, meðstjórnendur Al-
freð Gíslason og Guðmundur
Björnsson.
Dcild sérfræðinga innan L. R.
var stofnuð hinn 26. marz 1962.
Formaður er Theodór Skúlason,
ritari Gunnar Guðmundsson og
gjaldkeri Ragnar Ivarlsson.
Samkv. samþykkt frá síðasta
aðalfundi samdi stjórnin um
kaup á ævarandi eignar- og iit-
gáfuréttindum á ritinu Læk'nar
á Islandi. Mun gjaldkeri gera
grein fyrir þessum kaupum.
Dagana 4.—9. sept. síðastl.
var lialdið í Reykjavík hið fvrsta
námskeið fvrir almenna prakt-
iserandi lækna. Námskeiðið sóttu
14 læknar, en 23 læknar stóðu
að kennslunni. Kostnað við
námskeiðið greiddu ríkissjóður
og Trvggingastofnun ríkisins að
jöfnu. Mun gjaldkeri leggja
fram reikninga. Þess skal get-
ið, að nú er heimild i fjárlögum
til þess að styrkja framvegis
slík námskeið, og á Kjartan
Jóhannsson, læknir og alþingis-
maður, skildar þakkir stéttar-
innar fyrir það.
Ekki verður hjá því komizt,
að minnast hér á launadeilur
milli Sjúkrasamlags Reykjavík-
ur annars vegar og L. R. liins
vegar fyrir liönd lieimilislækna
og sérfræðinga í Reykjavík. Þeg-
ar útséð þótti um, að samning-
ar næðust, sagði L. R. upp sam-
starfi við S. R. frá 1. okt. 1961.
Félagsmálaráðherra framlengdi
uppsagnarfrestinn um þrjámán-
uði með bráðabirgðalögum.