Læknablaðið - 01.12.1962, Qupperneq 76
188
LÆKNABLAÐIÐ
fundinum. Á þessu stigi máls-
ins tóku þátt í umræðum um
bréf L. R. eftirtaldir fulltrúar
auk formanns: Öfeigur J. Ó-
feigsson, Þorsteinn Sigurðsson,
Ólafur Björnsson og Ólafur
Bjarnason.
Guðmundur Karl Pétursson
bar fram fyrirspurn um nýjan
útgjaldalið hjá læknum, þ. e.
svonefnt aðstöðugjald, og var
það eftir ósk eins félaga úr
Læknafélagi Akureyrar. Óskaði
hann þess, að stjórn félagsins
bæri réttmæti þessa álags und-
ir álit lögfræðings.
Fleiri mál frá svæðafélögum
komu ekki fram.
Aðild L. I. að BHM
og BSRB.
Ólafur Bjarnason reifaði mál-
ið og rakti nokkuð þátttöku L.
I. í BSRB á undanl'örnum ár-
um og einnig aðild L. 1. að
BHM. Taldi hann rétt að ræða
málið vandlega nú, en fresta
ákvörðun til næsta dags, svo að
fulltrúum gæfist nokkurt tóm
til íhugunar. Miklar umræður
urðu um þetta mál, og tóku þátt
í þeim eftirtaldir fulltrúar:
Óskar Þórðarson, Ófeigur J. Ó-
feigsson, Ólafur Þ. Þorsteinsson,
Guðmundur Karl Pétursson,
Ólafur Björnsson, Eggert Ein-
arsson, Þorsteinn Sigurðsson,
Bjarni Bjarnason og Kristján
Sigurðsson. Þar eð nú var álið-
ið kvölds, óskaði formaður fé-
lagsstjórnar þess, að umræð-
um yrði frestað til næsta dags,
og voru fundarmenn samþykk-
ir því.
Fundur hófst að nýju hinn
18. ágúst kl. 9,15 með fram-
haldsumræðum um aðild L. 1.
að BHM og BSRB.
Ólafur Bjarnason tók fyrst
ur til máls og lagði fram eftir-
farandi tillögu frá stjórn L. I.:
„Aðalfundur Læknafélags
Islands haldinn að Hallorms-
stað 17. og 18. ágúst 1962 á-
lyktar, að félaginu heri af
fremsta megni að stuðla að
því, að BHM verði viður-
kenndur samningsaðili fyrir
meðlimi sina. Jafnframt lít-
ur fundurinn svo á, að ekki
sé tímabært eins og sakir
standa að taka endanlega
ákvörðun um úrsögn L. I. úr
BSRB.“
Um ályktun stjómarinnar
tóku til máls þeir Ófeigur J.
Ófeigsson og Eggert Einarsson.
Ályktunin var síðan borin und-
ir atkvæði og samþykkt ein-
róma.
Stjórn L. 1. lagði til, að, eft-
irtaldir fulltrúar yrðu kosnir á
þing BSRB: ólafur Bjarnason,
Ólafur Björnsson og Arinbjörn
Kolbeinsson og til vara Eggert
Einarsson. Engar aðrar uppá-
stungur komu fram, og voru
því nefndir fulltrúar sjálf-
kjörnir.
Stjórn L. I. gerði tillögu um
eftirtalda fulltrúa í BHM: Ar-
inbjörn Kolbeinsson, Snorra P.