Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1972, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 01.06.1972, Blaðsíða 22
8 LÆKNABLAÐIÐ er miðeyrað fyllt með smábitum af hlaupsvampi, vættum í upplausn af fúkkalyfi (sjá 5. mynd). Ég nota polymyxin, ef ekki er fyrir hendi sýklarannsókn og næmispróf, sem bendir á annað lyf. Þá er náð í æðastúfinn. Ég er vanur að skera hann úr handleggnum daginn áður og geyma hann inni í sárinu, festan á silkispotta. Þegar á honum þarf að halda, kippi ég honum út. Æðabúturinn er því næst sniðinn þannig, að hann sé um fimm millimetrum stærri í þvermál en gatið. Síðan er hann lagður yfir gatið þannig, að innra borð æðarinnar snúi inn að miðeyranu. Loks er köntum bótarinnar ýtt inn undir brúnir gatsins (sjá 6. mynd). Sumir fylla eyrnaganginn með tróði eftir aðgerðina og reifa höfuðið. Ég nota engar umbúðir, en læt aðeins dauðhreinsaðan bóm- ullarhnoðra í hlustina. Þannig er auðvelt að fylgjast með því, hvernig bótinni líður, og lít ég í fyrstu á hana daglega. Komið hefur fyrir, að hún hafi losnað á parti, og hefur þá oftast tekizt að lagfæra það. 7. mynd: Oftast læt ég kera í bótina. Þar eð fyrir kemur, að mikil vessamyndun eigi sér stað í mið- eyranu fyrstu dagana eftir aðgerð, og þenji bótina út og jafnvel rífi hana frá, hef ég tekið upp þá nýbreytni að skera smágat í bótina og setja í það plastpípu sem kera (sjá 7. mynd). Ég fjarlægi hana nokkrum dögum síðar, eftir ástæðum. Gatið eftir kerann lokast jafnan og grær fljótt. Sjúklingurinn fær fúkkalyf í vikutíma á eftir og er bannað að snýta sér, því að það gæti rifið bótina frá. Gaman er að fylgjast með því dag frá degi, hvernig æðar vaxa inn í bótina, þar til hún er öll orðin ljósrauð. Ef allt gengur að óskum, er gatið gróið að tveim til fjórum vikum liðnum eftir stærð. og nokkrum mánuðum síðar er varla unnt að sjá, hvar það var.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.