Læknablaðið - 01.06.1972, Blaðsíða 67
LÆKNABLAÐIÐ
45
Ólafur Ólafsson
NÝ HEILBRIGÐISLÖGGJÖF
OG FÉLAGSLEG LÆKNISFRÆÐI
Læknaþing íslands var haldið dagana 16.-18. september 1971.
Ýmsir málaflokkar voru þar til umræðu, m. a. tillögur um breytingar
á heilbrigðislöggjöf.1
Tilefni þessara umræðna var, að Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra skipaði fimm manna nefnd 22. apríl 1970, til þess að „endur-
skoða ýmsa þætti heilbrigðislöggjafarinnar.“ Nefndin skilaði síðan
áliti, er nefnist „Frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustuna." Þetta
frumvarp var sent L.f. til umsagnar, sem skipaði nefnd til að kanna
frumvarpið frekar. Ég hef kannað frumvarpið nokkuð, vegna þess að
ég var formaður í þeirri nefnd.
Við athugun á frumvarpinu kemur í ljós, að veigamiklar breyt-
ingar eru gerðar m. a. á:
1) Yfirstjórn heilbrigðismála.
2) Læknishéraðaskipan með meðfylgjandi áætlun um
byggingu 35 heilsugæzlustöðva.
3) Skipan sjúkrahúsmála o. fl.
í frumvarpinu eru margar vel rökstuddar tillögur og féllst nefnd
L.í. á ýmsar þeirra, en töluverðir meinbugir eru þó á gerð frum-
varpsins.
Málinu til skýringar skulu nú nefnd nokkur dæmi:
I. GAGNASÖFNUN
í frumvarpinu er lagt til, að stofnaður verði heilsugæzlustöðvar
víða um land.1
Það er verulegur galli á frumvarpinu, að engar niðurstöður af
könnunum á t. d. sjúklingaflæði, tilvísunarfjölda til sérfræðinga,
þ. á m. meinafræðilegra og Rtg-rannsókna, sjúkrarúmaþörf, gæði
læknisþjónustunnar o. fl. eru birtar eða í vitnað.
Þó má geta þess, að á árinu 1969 var dr. Kjartani Jóhannssyni
falið að „gera athugun á rekstri Landspítalans og setja fram hug-
myndir um nýtingu og skipulagshugsanir í heilbrigðiskerfinu.“ Hann
hefur lagt fram frumdrög rannsóknar og nokkrar niðurstöður.2 Einnig
hefur dr. Jón Sigurðsson, borgarlæknir, gert könnun á sjúkrarúma-
þörf,3 og ber að þakka þessa framtakssemi. Þessi orð má ekki skilja
svo, að gagnakönnun gefi alltaf „rétta svarið“, en hún er þó forsenda
raunhæfra áætlanagerða.
II. LÆKNISÞJÓNUSTAN — EINN ÞÁTTUR
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNAR
í frumvarpinu er nær eingöngu fjallað um læknisþjónustuna.