Læknablaðið - 01.06.1972, Blaðsíða 68
46
LÆKNABLAÐIÐ
Allir þeir, sem kynnt hafa sér þessi mál, vita, að þótt læknar gegni
mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustimni, þá eru fleiri aðilar í
þjóðfélaginu, sem hafa ekki síður mikilvægu hlutverki að gegna í
þessu efni.
Heilbrigðisþjónustan er ekki lengur einkamál lækna og sjúklinga,
þótt svo hafi verið fyrr á öldum. í frumvarpinu er nokkuð minnzt
á hjúkrunarkonur, enda nú meira en 100 ár liðin, síðan Florence
Nightingale sannaði mikilvægi hjúkrunarstéttarinnar.
Annarra heilbrigðisstétta svo sem ljósmæðra, félagsráðgjafa, sál-
fræðinga, meinatækna, sjúkraliða, orkuþjálfara, eðlis- og efnafræðinga
og fólki, sem tekur þátt í stjórnun, eru gerð lítil skil. Nokkur ár eru
þó liðin síðan Félag heilbrigðisstétta var stofnað.
III. LÆKNISÞJÓNUSTAN OG FÉLAGSMÁL
Lítið er rætt um félagsmál, en félagslegar framfarir (m. a. bættur
aðbúnaður fólks, betri húsakynni, batnandi viðurværi, betri menntun
og samgöngur) hafa einnig stuðlað að bættri heilsu landsmanna, ekki
síður en læknisaðgerðir og lyfjagjafir.
Hér á eftir fara nokkur línurit og töflur, sem skýra mál mitt.
2000
FJÖLDI
D'ANIP, ÚR LUNGNABÖLGU. BERKLUM OG
FARS’OTTUM ALLS ’ARI N 1911-'60
,--LUNGNABOLGA
1911-15 '16-20 '21-'25 '25;30 '31-'35 '36-XO '41-'45 '46-'50 '51-'55 ’66-'60 AR
Línurit I-4