Læknablaðið - 01.06.1972, Blaðsíða 64
44
LÆKNABLAÐIÐ
*■
BAKFÆÐING
Meðan ég gegndi héraðslæknisstörfum í Reykjavík 1905, kom ég
oft til dr. Jónassens, landlæknis, og hafði mikla ánægju af að fræðast
af honum og heyra hann segja sögur úr sínum praxis. Þá sagði hann
mér m. a. þetta:
Einu sinni sátu þeir báðir yfir konu, Hjaltalín og hann, uppi í
Mosfellssveit. Grindarþrengsli og gekk ekkert. Bollalögðu þeir margt
og voru á báðum áttum, hverra aðgerða skyldi freista. Þá bar að
Magnús frá Dysjum. Hann var víðkunnur skottulæknir. (Líklega
verið tilkallaður i laumi af barnsföður). „Við skulum reyna bakfæð-
ingu,“ sagði Magnús eftir nokkra umþenkingu. Það var samþykkt í
einu hljóði.
Magnús tók konuna á bak sér þannig, að þau sneru bökum saman
líkt og þegar tveir „vega salt“. Gekk hann síðan bograndi með kon-
una á bakinu fram og aftur um baðstofuna nokkra stund. Fætur
konunnar héngu út af lendum Magnúsar. Þetta hafði góðan árangur,
og konan fæddi án frekari aðgerða.
(Steingrímur Matthíasson: „Konur í barnsnauð",
Lbl., nóv. 1922).
SKÍRLÍFI OG HÓRDÓMUR
Miss Ettie A. Rout, læknir, orðskýrir þannig: Skírlífi er sam-
farir karla og kvenna, sem elskast, — hórdómur er samfarir karla og
kvenna, sem ekki unnast, hvort sem þau eru gift eða ógift.
Kona þessi er sögð mikill víkingur í „antiveneral work“. Hafði
hún t. d. eitt sinn á hendi (í ófriðnum) eftirlit með stóru hóruhúsi
í París og gerði það svo rækilega, að enginn smitaðist, hvorki stúlk-
urnar né gestirnir. Má slíkt fádæmi heita. Hún telur sjálfsagt, að
fólki sé kennt að beita öllum skynsamlegum vörnum gegn kynsjúk-
dómum og einnig gegn barnagetnaði.
(Lbl., sept. 1922)
MEÐFERÐ ECLAMPSIU
í Dublin (dr. Tweedy) hefur þessi aðferð verið notuð við
eclampsiu (204 sjúkl.): 1) Alger sultur í þrjá daga. 2) Magaskolun.
3) Garnaskolun. 4) Morphin (sub. judice). 5) Sodavatni dælt undir
brjóstin. 6) Nákvæm hjúkrun og sérstaklega gáð að, að slím komist
ekki ofan í andfærin. — 8-9% dóu.
(Lbl., sept. 1922)