Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1972, Page 33

Læknablaðið - 01.06.1972, Page 33
LÆKNABLAÐIÐ 17 125 250 500 1000 2000 4000 8000 100 110 r r r r L l L L VwC yy/. V / y V // />/ //// 777, // A // / % /// /// //// /• / / /' y// /// '/// / > ) /// /// Y V ) X r S4.'t7 i 18. mynd: Heyrnarmælingar hjá S. Ö. K. fyrir og eftir aðgerð, bar sem sett var beinflis í stað ístaðsboga. 19. mynd: Heyrnarmælingar hjá S. G. fyrir og eftir flutning steðja á ístað. beinkeðjan. var rofin og auk þess var gat á hljóðhimnu hjá öllum nema einum. f þeim tveim tilfellum, sem ég ætla að minnast á að lokum, var beinkeðjan heil, en hljóðhimnur vantaði að mestu. í öðru var um að ræða miðaldra skrifstofustjóra, M. J., sem oft þurfti að vera á fundum, en átti erfitt með að heyra það, sem þar var talað. Hann kom til mín til þess að fá vottorð vegna kaupa á heyrnartæki. Ráðlagði ég honum að bíða með að fá sér heyrnartæki og bauðst til að reyna fyrst að lagfæra fyrir hann eyrun, og þáði hann það. Hljóðhimnur vantaði að mestu í bæði eyru. Annað var þurrt og gekk vel að græða bót í það, en útferð var úr hinu. Eftir aðgerðina batnaði heyrnin vel, og kvaðst hann nú ekki þurfa á heyrnartæki að halda. Hitt eyrað tókst að þurrka á nokkrum vikum, og gerði ég aðgerð á því hálfu ári síðar. En þá fór að ganga út úr því á ný og tókst ekki að loka því að fullu í það sinn. Af ýmsum ástæðum dróst það ein fjögur ár að endurtaka aðgerðina, en þá heppnaðist hún vel. Iíann fékk allgóða heyrn á bæði eyru, enda þótt um nokkra ,,innri heyrnar- deyfu“ væri að ræða (sjá 20. mynd).

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.