Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1972, Síða 35

Læknablaðið - 01.06.1972, Síða 35
LÆKNABLAÐIÐ 19 stundir, en þó hef ég verið yfir fimm klukkustundir með erfið tilfelli, einkum þegar um mikinn samvöxt, blæðingar eða kolesteatom hefur verið að ræða. Stundum eru kalkflögur milli laga í hljóðhimnu, og ef mikil brögð eru að því, getur verið tafsamt að fjarlægja þær. Ég hef framkvæmt þessar aðgerðir á aðgerðarstofu minni og yfirleitt ekki látið sjúklingana liggja í rúminu á eftir. Þó hef ég stundum ráðlagt þeim tveggja til þriggja daga hvíld, einkum eftir viðgerð á beinkeðjunni, t. d. þegar steðjinn hefur verið fluttur yfir á ístaðið. Tel ég þá síður hættu á, að eitthvað fari úr skorðum. Aðferðir til lagfæringar á hljóðhimnu og beinkeðju miðeyrans eða öðru, sem þar kann að vera að, eru svo margar og fjölbreytilegar, að ekki eru tök á að minnast á þær allar hér. Ég hef aðeins drepið á hinar helztu til þess að veita þeim, sem ekki hafa kynnzt þessum aðgerðum áður, dálitla hugmynd um það, sem gert er á þessu sviði, þar eð lítið eða ekkert hefur birzt um þetta efni hér á landi fyrr, að því er ég bezt veit. ÁRANGUR Áður en ég skýri frá árangri aðgerðanna, vil ég drepa lítillega á þær heyrnarmælingaaðferðir, sem hann byggist á, en það eru svo- nefndar „tónmælingar“ (pure tone audiometri). Mælingarnar eru tvíþættar. ,,Beinleiðsla“ er mæld þannig, að hljóðgjafinn er lagður á beinið bak við eyrað. Fara hljóðbylgjurnar þá beinustu leið eftir höfuðkúpunni til innra eyrans, og sýnir sú mæling hina „innri heyrn“. „Loftleiðsla“ er mæld með því að setja heyrnartól á eyrað. Berast hljóðbylgjurnar þá í loftinu að hljóðhimnunni. Þegar heyrn er eðlileg, falla loft- og beinleiðsla að mestu saman á línuriti, en ef eitthvað er að hljóðhimnu eða miðeyra verður loft- leiðslan lakari og því meira eða minna bil á milli þeirra. Þetta bil er á ensku nefnt „air- bone gap“, og hef ég kallað það hér „loft- bein bil“. Þegar dæmt er um árangur heyrnarbætandi aðgerðar, er einkum litið á það, hve mikið tekst að minnka þetta bil. Takist að eyða því alveg, telst árangur fullkominn, jafnvel þó að ekki fáist „nothæf heym“ með aðgerðinni. En með nothæfri heym er yfirleitt átt við, að ekki vanti meira en 30 dB á eðlilega heyrn á 500 - 1000 og 2000 riðum (Hz) að meðaltali, en á því tónsviði liggur mælt mál að mestu. Árangurinn, sem sýndur er hér á línuritum, er byggður á mæl- ingum, gerðum fyrir aðgerð og a. m. k. tveim mánuðum eftir aðgerð, og er hann meðalheyrn á þessu tónsviði. Flestir telja, að „loft-bein bil“ hafi lokazt, ef ekki vantar meira en 15 dB þar á. Ég hef skipt aðgerðunum í tvo flokka. í hinum fyrri em hljóð- himnubætingar eingöngu, en í þeim síðari aðgerðir á beinkeðju mið- eyrans ásamt viðgerð á gati á hljóðhimnu í flestum tilfellum. í fyrri flokknum eru fyrstu 100 hljóðhimnubætingarnar, sem ég
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.