Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1972, Page 71

Læknablaðið - 01.06.1972, Page 71
LÆKNABLAÐIÐ 49 FRÉTTIR FRÁ AÐALFUNDI LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR 1972 Aðalfizndur Læknafélags Reykjavíkur 1972 var haldinn í Domus Medica 8. marz og framhaldsaðalfundur 20. marz. Formaður flutti skýrslu stjórnar og gjaldkeri lagði fram endurskoðaða reikninga fé- lagsins, en hvorttveggja hafði verið sent félagsmönnum fyrir fundinn. Þá var og greint frá starfsemi og fjárhag Domus Medica, sem og þeirra sjóða, er starfa innan vébanda félagsins. Fráfarandi stjórn skipuðu Víkingur H. Arnórsson, formaður, Jak- ob Jónasson, ritari, og Þorgeir Gestsson, gjaldkeri. Kjörnir voru í aðalstjórn til tveggja ára: Einar Baldvinsson formaður, Kjartan Páls- son ritari og Jón Grmnlaugsson gjaldkeri. Endurkosnir voru í með- stjórn einnig til tveggja ára: Emil Als, Jóhann L. Jónasson og Sverrir Haraldsson. Til eins árs voru kosnir Guðmundur Oddsson og Ólafur Stephensen í stað Einars Baldvinssonar, er átti eftir eitt ár af sínu kjörtímabili, og Páls Eiríkssonar, sem kosinn var í meðstjórn 1971, en fór skömmu síðar í framhaldsnám til útlanda. Allir voru þessir menn sjálfkjörnir. Fyrir voru í meðstjórn Bergþóra Sigurðardóttir, Grímur Jónsson, Guðjón Magnússon og ísak G. Hallgrímsson. Kosnir voru til vara í meðstjórn á framhaldsaðalfundi samkvæmt nýsamþykktri lagabreytingu: Magnús K. Pétursson, Ólafur Örn Arnar- son og Ólafur Þ. Jónsson. Kosnir fulltrúar á aðalfund L.í. til 2ja ára: Einar Baldvinsson, Guðjón Magnússon, Jón Gunnlaugsson, Jón Þorsteinsson, Snorri P. Snorrason, Tómas Ámi Jónasson, Örn Bjarnason. Varafulltrúar: Arinbjöm Kolbeinsson, Emil Als, Guðmundur Oddsson, Guðmundur Benediktsson, Gunnlaugur Snædal og Jóhann Láms Jónasson. Bæði aðalfulltrúar og varafulltrúar vora sjálfkjömir, þar sem ekki komu fleiri uppástungur fram. Endurskoðendur félagsreikninga voru kosnir Hannes Finnboga- son og Stefán Bogason; til vara Hörður Þorleifsson og Jón K. Árnason. Árgjald var ákveðið óbreytt tíu þúsund krónur. Fráfarandi stjórn lagði fram nokkrar tillögur til lagabreytinga og voru þær samþykktar óbreyttar á framhaldsaðalfundi. Þessar breytingar snerta eftirfarandi greinar félagslaga: 6. gr.: Um kjör heiðursfélaga. 9. gr.: Um dagskrá aðalfundar (ný og breytt dagskráratriði). 11. gr.: Um varamenn í meðstjórn (nýtt ákvæði). 13. gr.: Um stjórnskipaðar nefndir og orðalagsbreyting um verk- svið félagsstjórnar. 17. gr.: Um Læknablaðið (skipulagsbreytingar). 19. gr.: Um lagabreytingar.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.