Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.11.1972, Page 47

Læknablaðið - 01.11.1972, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ 177 legt frumkvæði við áætlanagerðina, hvort sem um er að ræða fjár- hagsáætlun, framkvæmdaáætlun eða almenna vinnuáætlun, er hætt við, að gildi hennar verði ekki sem skyldi. Áætlunin dregur þá ekkí nægjanlega úr ýmsum skyndiráðstöfunum, og léttir ekki störfin og samhæfingu þeirra eins og til er ætlazt, og skapar ekki þann grund- völl til eftirlits, sem nauðsynlegur er. MARKMIÐ OG SKIPULAG Til þess að ná markmiði því, sem heilbrigðisstofnun stefnir að, verða læknar að geta skipulagt eða sagt fyrir um, hvernig skuli skipu- leggja rekstur stofnunarinnar, annars vegar eins og æskilegast væri, hins vegar eins og fjárhagurinn leyfir á hverjum tíma. Þetta útheimtir, að læknirinn geri sér grein fyrir, hve mikið starfslið og hve mikið af hjálpargögnum hann þarf á hverjum tíma til að framkvæma þau verk- efni, sem hann á að sjá um. í samræmi við þetta verður læknirinn að skipuleggja eigin tíma og samhæfa vinnu samstarfsfólksins innan þess tíma, sem ráðningarkjör þess gera ráð fyrir. Hann verður og að sjá um skipulagningu á réttri nýtingu húsakosts og tækja. Við skipu- lagninguna er nauðsynlegt að hafa góða samvinnu við samstarfsfólkið og' einstaka verkstjóra þess. Með því móti næst beztur árangur. I stærri stofnunum felum við raunar öðrum, nefnilega nánustu sam- starfsstétt okkar, hjúkrunarkonum, verulegan hluta af þessari skipu- lagningu og eftirlit með því, að henni sé framfylgt. Þar verður og að vera nokkur verkaskipting milli lækna, þannig að einhver annist skipulagninguna öðrum fremur. STARFSLIÐUN OG LÝÐRÆÐI Nátengd skipulagningunni er starfsliðunin. Góð starfsliðun er for- senda þess, að skipulagning takist. Góð starfsliðun þýðir ekki aðeins nægjanlegur fjöldi starfsfólks, heldur nægjanlegur fjöldi vel hæfs starfsfólks, sem stöðvast í rekstrinum. Hér reynir að sjálfsögðu mjög á læknana, sem eiga að vera leiðtogar starfsliðsins. Þeir verða að leiðbeina, örva og treysta samstarfsfólkinu þannig, að það finni ánægju og persónulega fullnægingu í starfinu, auk þess, sem þeir verða að stuðla að því, að allir fái sanngjörn laun. Því miður ráðum við ekki launakjörum starfsliðsins, nema að mjög takmörkuðu leyti. Það gera að sjálfsögðu eigendur stofnananna, sem tíðum þurfa að taka fullt eins mikið tillit til ýmissa þátta, sem ekki snerta heilbrigðisstofnanirnar nema óbeint. Þess vegna er enn brýnni nauðsyn, að læknar hvetji samstarfsfólkið á annan hátt og láti það finna, að það sé beinir þátttakendur í meðferð sjúklinganna og rekstri stofnunarinnar. Fólk þarf að finna, að vinna þess og tillögur séu metnar að verðleikum. Hópkennd og lýðræðisleg stjórn auðvelda tvímælalaust framkvæmd þeirra verka, sem við eigum að sjá um, ef þátttakendurnir hafa til að bera nægilegan þroska og ábyrgðartil- finningu. Þeir verða að kunna að meta þá valkosti, sem til greina koma í sambandi við töku ákvarðana og geta gert sér grein fyrir af-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.