Læknablaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ
185
Tvær skoðanir eru um verkunarmáta deyfingarinnar. Einn hóp-
ur manna heldur fram gömlum kenningum um dularfullar, óskýrðar
brautir víðsvegar um líkamann, en fleiri oru þeirrar skoðunar, að
um taugafræðilegt fyrirbæri sé að ræða, moð áður óþekktri sam-
tvinnun taugabrauta. Nokkrar rannsóknir haía verið gerðir á fyrir-
bærinu og benda niðurstöður þeirra frekar t.ii að ,,taugakenningin“ sé
hin rétta. í tilraunadýrum hafa, með sársaukasnertingu, verið fram-
kallaðir spennutoppar í heilaberki. Nálardeyfing á réttum stað virð-
ist lækka slíka spennutoppa að mun. Einnig segjast Kínverjar hafa
sýnt fram á afmarkaða „hópa“ taugaenda í eyrum, en þau eru mikið
notuð til nálarstungudeyfinga. Við ertingu slíks taugaendahóps þykj-
ast menn hafa sýnt fram á breytta rafleiðni á kviðnum. Þótt nokkuð
sé þannig unnið að rannsóknum á fyrirbæri þessu, virtist ýmsum
kínverskum læknum nægja að vita, að aðferðin ber tilætlaðan árang-
ur, hver sem skýringin er. Spurðu þeir erlenda starfsbræður sína,
hvort þeir þekktu að fullu verkun aspiríns.
Dað er álit Dimonds læknis, að árangur af nálarstungudeyfingum
sé ótvíræður og verði ekki skýrður á sálrænum grundvelli einum.
Verði rannsóknum á eðli fyrirbæris þessa haldið áfram, er ekki o-
sennilegt, að hinn vestræni heimur geti vænzt óvænts og nytsams
þokkingarauka úr ríki Maos.
HEIMILD:
Dimond, E. G., Acupuncture Aneshesia. J. Amer. Med. Ass. 218:1558. 1971.
Læknirinn brosandi: „Jæja, Jón minn, þetta er ekki eins slæmt
og ég hélt. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur, blóðið í þér-
er í lagi.“
„Gott,“ svaraði Jón. „Gefðu mér það þá aftur, svo að ég geti
farið að vinna.“
Maður nokkur hitti Skota í lestinni frá Edinborg til London.
Á hverri stöð yfirgaf Skotinn lestarklefann og flýtti sér inn i
stöðvarhúsið. Hann kom svo móður og másandi aftur inn í lestina
rétt áður en hún fór af stað. Loks gat maðurinn ekki á sér setið
og spurði Skotann hvers vegna hann gerði þetta.
„Það er vegna hjartans,“ svaraði Skotinn. „Læknirinn segir,
að ég geti hrokkið upp af hvenær sem er, svo að ég kaupi farmiða
frá stöð til stöðvar."
Það borgar sig að fara til læknis.
Fáir þú kvef og farir ekki til læknis, varir það í 14 daga
Farir þú hins vegar til læknis og takir lyfin, sem hann gefur þér,
losnarðu við það á tveimur vikum.