Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1978, Side 9

Læknablaðið - 01.12.1978, Side 9
LÆKNABLAÐIÐ 169 ferð, skurðaðgerð eða geislun hversu rót- tæk sem aðgerðin er. Rannsóknir hafa leitt í Ijós að árangur lyfjameðferðar standi í öf- ugu hlutfalli við fjölda illkynja fruma í líkam- anum. Eðlilegt er því að beita lyfjameðferð þegar fjöldi slíkra fruma er í lágmarki, en svo er einmitt ástatt eftir skurðaðgerð eða geislameðferð er meginæxli hefur verið eytt en ógreinanleg meinvörp (micrometastasar) kunna að vera eftir. Er því nauðsynlegt að frá upphafi sé samband og samvinna milli allra lækna sem hlut eiga að máli, skurð- læknis, geislalæknis og þess sem stjórnar lyfjameðferðinni því að öllu máli skiptir að vel sé á haldið í byrjun. Mælt er með slíkri lyfjameðferð (adjuvant therapy) ef eftirtalin skilyrði eru uppfyllt: 1. Miklar líkur (meira en 50%) á endur- komu (recurrence) æxlis. 2. Að fyrir hendi sé lyfjameðferð, sem komi að verulegu gagni þegar henni er beitt gegn sama sjúkdómi á útbreiddu stigi. 3. Að almennt ástand sjúklingsins bendi til að hann þoli vel slíka meðferð. Þar til unnt verður að segja með vissu hverjir hafi micrometastasa verður að styðj- ast við almennar reglur af þessu tæi til að gæta hagsmuna þeirra sjúklinga, sem þegar eru læknaðir með frumaðgerð. Að sjálf- sögðu er afar óæskilegt að gefa þessum hópi „óþarfa" lyfjameðferð, þar sem auk hinna tímabundnu og reversible aukaverkana hafa mörg frumudeyðandi lyf mutagen carci- nogen eiglnleika. Meðferð af þessu tæi hef- ur þegar sýnt árangur við krabbamein í brjósti, beinum, eistum og við smáfrumu- krabbamein í lungum, sem öll uppfylla skil- yrði 1 og 2 hér að framan. Flest krabbamein í öndunar og meltingarfærum uppfylla hins vegar ekki skilyrði 2, enda hefur lítill árang- ur náðst þar með lyfjameðferð eftir skurð- aðgerð. Innan við fjórðungur barna með Wilm's tumor læknast með skurðaðgerð. Sé geislað eftir aðgerð læknast allt að helmingur sjúk- linganna og sé einnig gefin lyfjameðferð má lækna þrjú börn af fjórum. Með tilkomu nýrra lyfja og betri hagnýtingu þeirra sem við höfum nú þegar ásamt aukinni samnýt- ingu hinna þriggja megin lækningaaðferða er full ástæða til að búast við stöðugum framförum í meðferð illkynja sjúkdóma. Sigurður Björnsson. SKIPULAGNING KRABBAMEINSMEÐFERÐAR Á ÍSLANDI Inngangur Tilgangur greinar þessarar er að gera samanburð á meðferð og eftirliti krabba- meinssjúklinga hérlendis og hjá nágranna- þjóðum okkar. Síðan mun ég ræða stuttlega nauðsynlegar úrbætur. Uppbygging krabbameinsmeðferðar Meðferð krabbameins að frátöldum skurð- aðgerðum er geislun og lyfjameðferð, ýmist gefin sitt í hvoru lagi eða samtímis allt eftir eðli og útbreiðslu sjúkdóms. Forsenda réttrar meðferðar er sú, að sam- tímis frumgreiningu séu gerðar nauðsynlegar rannsóknir til ákvörðunar útbreiðslu sjúk- dóms, þar eð sjúkdómsútbreiðsla eða stig sjúkdóms ræður vali meðferðar. í öllum nágrannalöncfum okkar hafa í ára- tugi verið starfræktar krabbameinsmiðstöðv- ar, annað hvort sem sjálfstæðar stofnanir eða sérhæfðar deildir stærri sjúkrahúsa. Verkefni þessara stöðva er greining, geisla- og lyfjameðferð og efirlit krabbameinssjúk- linga svo og þróun rannsóknarvinnu hvað varðar meðferð krabbameinssjúkdóma. Starf á krabbameinsmiðstöð skiptist í tvo meginþætti, annars vegar móttaka sjúklinga á göngudeild og hins vegar þjónusta við sjúklinga á legudeild stofnunarinnar. Hlut- föll þjónustu á göngudeild og legudeild er í stórum dráttum það, að um 80% meðferðar er gefin sjúklingum á göngudeild og að auki er nær öllu eftirliti sinnt þar. Göngudeild- inni er síðan skipt niður í sjálfstæðar ein- ingar. Hefur hver gönaudeildareining að hluta sérhæft starfslið er sinnir meðferð krabba- meins í ákveðnum líffærakerfum, en læknar deildarinnar sinna að auki sjúklingum á legu- deild stöðvarinnar. Á þennan hátt fæst fram ákveðin verka- skipting og sérhæfni, sem er ein af forsend- um nútíma krabbameinsmeðferðar. í skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnun- arinnar (W.H.O.) no. 32 frá 1966, er fjallar

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.