Læknablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ
171
Niðurstaða
Ljóst er að skipulagning krabbameinsmeð-
ferðar hérlendis er í molum. Börf er mikilla
úrbóta til þess að unnt sé að gefa krabba-
meinssjúklingum hérlendis meðferð, sem
sambærileg er við þá sem veitt er í ná-
grannalöndum okkar. Stofnun krabbameins-
miðstöðvar sem lýst hefur verið gæti leyst
þennan vanda. Sú þjónusta er dýr, en verði
hins vegar ekkert aðhafst má vera Ijóst að
markviss krabbameinsmeðferð verður ekki
veitt á íslandi og senda verður stóran og
vaxandi hluta nýgreindra sjúklinga utan til
meðferðar.
1. WHO Technical report series. Cancer
treatment. No. 322, 1966.
2. National program for the conquest of
cancer. 91st Congress, 2d session, U.S.
Senate, (Senate resolution 376) U.S.
Government Printing Office, Whasington
D.C., Novemer (committee print I & II)
and December (Senate report No. 91-
1402), 1970.
3. Planering av oncologisk sjukvard No. 32,
februar 1974.
Þórarinn Sveinsson.
Frá ritstjórn nýja læknatalsins
Hefur þú skilað inn upplýsingum í nýja
læknatalið? Ef svo er ekki ertu ákaft á-
minntur að gera það hið fyrsta. Við viljum
öll að bókin geymi ferskar upplýsingar,
en verði ekki gerúrelt, þegar hún kemur
út. Vilmundur Jónsson barðist hetjulegri
baráttu við pennaleti starfssystkina sinna,
en þó var talið á skorta, að Læknar á ís-
landi geymdi nógu ferskan fróðleik. Slíkt
má ekki aftur spyrjast um íslenska lækna.
Láttu ekki hjá líða að setjast niður hið
bráðasta og fylla út eyðublöðin. Það er
ekki eins seinlegt og þú heldur. Sennilega
er þegar komið all langt fram yfir skila-
dag.
Þú vilt ekki vera dragbítur á útgáfu bók-
arinnar. Þú getur skilað strax á morgun.
Já — því ekki það?