Læknablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 63
LÆKNABLAÐIÐ
197
J. N. P. Davies, D.Sc., M.D., F.R.C. Path.*
„THE NEWER EPIDEMIOLOGY OF CANCER WITH
SPECIAL REFERENCE TO HODGKINS DISEASE"
The Niels Dungal memorial lecture University of Iceland Reykjavík
Formáli
Fyrirlestur sá, eftir J.N.P. Davies, sem
hér birtist er hinn níundi Nielsar Dungals
minningarfyrirlestur, haldinn á vegum
sjóðs Nielsar Dungals prófessors. Skipu-
lagsskrá sjóðsins var staðfest af forseta
íslands 1. nóvember 1971. í 4. grein skipu-
lagsskrárinnar segir: „Tilgangur sjóðsins
er að bjóða til fyrirlestrarhalds við Há-
skóla íslands íslenzkum eða erlendum
fræðimönnum og skulu fyrirlestrarnir
tengdir nafni prófessor Nielsar Dungals“.
Vegna sjötugsafmælis Nielsar Dungals,
þ. 14. júní 1967 var í samræmi við drög
að skipulagsskrá, fyrsta fyrirlesaranum
boðið að flytja Nielsar Dungals minning-
arfyrirlestur. Var það prófessor Carl
Gustaf Ahlström frá Háskólanum í Lundi.
Annar Nielsar Dungals fyrirlestur var
fluttur af Shields Warren frá Harvard Há-
skóla. Síðan féllu fyrirlestrar þessir niður
í nokkur ár, þar til skipulagsskrá var form-
lega staðfest, en hafa verið fluttir árlega
eftir það.
Eftirtaldir vísindamenn hafa flutt Niels-
ar Dungals fyrirlestra:
1. Carl Gustaf Ahlström frá Háskólanum
í Lundi: „Virus och Cancer, den olösta
gátan“. Fyrirlesturinn birtist síðar í
Læknablaðinu, 53. árg. 1967, bls. 132—
151.
2. Shields Warren frá Harvard Háskóla:
„Radiation as a carcinogen11. Erindið
birtist í Læknablaðinu, 54. árg. 1968,
bls. 211—227.
* Professor of Pathology Albany Medical Col-
lege Albany, NEW YORK.
Barst ritstjórn 6/7/78.
3. N.F.C. Gowing, The Royal Marsden
Hospital, London: Testicular Tumours.
4. Steen Olsen, Árósarháskóla:
Glomerulonephritis.
5. A. Laufer. The Hebrew University,
Jerusalem: Bone tumours.
6. Harald Gormsen, Retsmedicinsk Institut,
Kaupmannahaf narháskóla: N arkoman-
dödsfald í Köbenhavn.
7. J.Chr. Siim, Statens Seruminstitut,
Köbenhavn: Toxoplasmosis.
8. Jörgen Dalgaard, Retsmedicinsk Institut,
Árósarháskóla, Trafikulykker.
9. J.N.P. Davies, The Albany Medical
College of Union University, Albany,
New York, U.S.A.: The Epidemiology of
Cancer with special reference to
Hodgkin’s Disease.
10. David E. Anderson, M.D. Anderson
Hospital and Tumour Institute, Texas
Medical Center, Texas, U.S.A.: Hetero-
geneity of Familial Breast Cancer.
Auk hinna formlegu Nielsar Dungals
minningarfyrirlestra fluttu flestir fyrir-
lesaranna erindi fyrir stúdenta í lækna-
deild.
Fyrirlestur J.P.N. Davies um Hodgkin’s
sjúkdóm var fluttur í tengslum við fund
Nordisk Cancerunion hér á s.l. sumri og
ráðstefnu um krabbamein og erfðir, sem
þá var haldin á vegum Krabbameinsfélags
íslands. Dungalsjsóðurinn stóð einnig að
boði annars fyrirlesara til þessarar ráð-
stefnu þ.e.a.s. D.E. Anderson frá M.D.
Anderson Hospital and Tumour Institute,
Texas Medical Center, Houston. En erindi
hans fjallaði um brjóstakrabbamein og
erfðir.
Ólafur Bjarnason.