Læknablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 78
208
LÆKNABLAÐIÐ
Árni B. Stefánsson, Bjarni Hannesson
SJÚKRATILFELLÍ FRÁ SKURÐLÆKNISDEILD
BORGARSPÍTALA
AÖdragándi innlagnar
Kona, 55 ára var lögð inn bráða innlögn af
heimilislækni í samráði við lækna skurðdeildar,
til rannsókna vegna ákveðins gruns um mið-
læga fyrirferðaraukningu í eða við heilastofn.
Saga
3 til 4 vikur í fyrstu hægt vaxandi óljós ein-
kenni frá miðtaugakerfi, en vikuna fyrir inn-
lögn hrakaði sjúkl. verulega. Einkenni voru:
1. Óstöðugleiki við gang, svimi.
2. Kiaufska í höndum.
3. Óskýrleiki í hugsun, gleymska, hratt vax-
andi eina til tvær vikur.
4. Þvöglumælgi u.þ.b. ein vika, hratt versn-
andi.
5. Verkir í og bak við augu ca. viku, sérstak-
lega versnandi síðustu 2 til 3 daga fyrir
innlögn.
6. Ljósfælni, vaxandi í 2—3 daga.
Þessi sjúkl. hefur leitað með allar sínar
kvartanir til sama heimilislæknis á undanförnu
ári a.m.k. og var ekki vitað um lyfjatöku sem
skýrt gátu einkenni hennar.
Hún var því innlögð bráða innlögn með grun
um miðlæga fyrirferðaraukningu í höfði þar
sem að nákvæm skoðun hafði ekki leitt i Ijós
nein staðbundin brottfallseinkenni.
Fyrri saga
Saga um ofnotkun áfengis á köflum og í
seinni tíð á 3 til 4 mán. fresti um eina helgi í
einu.
Saga um fyrra svimakast ári áður og hafði
það lagast á tabl. Thorecan 1x3.
Saga um truflun á starfsemi skjaldkirtils ’65,
var á lyfjum í 1 ár.
SkoÖun viö komu
Er sjúkl. kom á deildina staðfesti skoðun að
mestu fyrri skoðun heimilislæknis. Sjúkl. var
syfjuleg, þvöglumælt, hreyfingar óöruggar og
gangur var dál. óstöðugur og gleiðspora. Augn-
hreyfingar voru óöruggar og sjúkl. gat ekki
samhverft, hún hafði væga slímhúðarbólgu í
augum, og nokkra ljósfælni. Rhomberg var
jákvæður. Tveggja punkta mismuna skyn var
dál. minnkað og fingur-nefpróf dái. óöruggt.
Engin ákveðin brottfallseinkenni komu fram.
Almennt álit var að um ákaflega dreifð ein-
kenni frá miðtaugakerfi væri að ræða og engin
hliðarvísandi einkenni komu fram. Þá þótti
koma sterklega til greina að sjúkl. væri undir
áhrifum lyfja.
Gangur og meöferö
Engin ákveðin saga var um lyfjamisnotkun.
Ástæða var að ætla að sjúkl. fengi öll sín lyf
hjá heimilislækni sem voru: Tabl. Mogadon
undir svefn, tabl. Thorecan 1x3 og fjölvitamin
mixtirra. Vegna Þessa og hversu einkenni sjúkl.
fóru hratt versnandi var tekin sú stefna að láta
sjúkl. ganga eins hratt og mögulegt væri i
gegnum rannsóknir með tilliti til fyrirferðar-
aukningar í höfði, en lyfjaáhrif voru þó höfð í
huga. Blóðhagur var eðlil., deilitalning einnig.
Blóðsölt voru eðlil., nema s-klorið var hækkað
eða 116 mekv. T-4 var eðlil. Rtg.mynd af
cranium og upptökumynd voru eðlil. Á 2. degi
legu voru pöntuð mælanleg ávanalyf í blóð-
vökva, heilarit og beðið um álit HNE-lækna.
Á 4. degi legu var pantað s-brom og loft-ence-
phalografia. Að morgni 7. dags var gerð loft-
encephalografia sem reyndist neg. og skömmu
eftir þá rannsókn barst niðurstaða af s-bromi
sem var 256 mgr.% eða um 28 mekv. og grein-
ingin þannig komin. Heilarit var óeðlil., ósam-
ræmt, hægara og háspenntara vi.megin og kom
fram svæði með deltabylgjum eftir djúpa önd-
un. (Samrýmist reyndar brom eitrun). Strax og
greining var ljós var sjúkl. sett á tabl. Natrium
Klorið 6 gr. á dag og gengu einkenni hennar
hratt til baka. Því miður mun sýni vegna mæl-
anlegra ávanalyfja í blóðvökva hafa misfarist,
en ekki þykir ástæða til að ætla að sjúkl. hafi
tekið önnur lyf en Mixtura Nervina.
Niöurstaöa
Ekki er ástæða til að ætla að sjúkl. þessi
hafi notað önnur lyf en brom, en brom fékk
hún í handsali sem Mixtura Nervina í lyfjabúð
s.l. sumar, er hún kvartaði um erfiðleika við
svefn. Þetta lyf hefur hún síðan tekið að kvöldi
undir svefn í sopatali. Eitrunar einkenni komu
ekki fram fyrr en nokkrum mán. eftir að sjúkl.
byrjaði töku lyfsins og voru þá hratt vaxandi,
ef til vill vegna þess að sjúkl. jók við sig
skammtinn er hún átti verra með svefn, og/eða
dómgreind hennar minnkaði.
Eitrunareinkenni
Þau koma fram við 20 til 25 mekv. í serum
og fyrr hjá veikluðum einstaklingum.
I. Ta-ugakerfi:
A. GeÖlœg einkenni: 1. Erfiðleikar við hugs-