Læknablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 10
170
LÆKNABLAÐIÐ
um krabbameinsmeðferð segir, að í hverju
aðildarlandi skuli vera krabbameinsmiðstöð
eða deild er annist meðferð og eftirlit
krabbameinssjúklinga. Hentugust er stærð
slíkra stöðva talin þjóni þær 1000 til 3000
nýgreindum krabbameinssjúklingum árlega.
Þar sem sérstakar landfræðilegar aðstæður
eru til staðar er talinn grundvöllur fyrir
rekstri minni stöðva ef ný krabbameinstilfelli
eru 300 eða fleiri á ári.
Samkvæmt skýrslum Alþjóða heilþrigðis-
málastofnunar er tíðni krabbameins meðal
þróaðra þjóða 3000 til 3500 per milljón íbúa.
Koma tölur þessar nokkurn vegin heim við
árlegan fjölda nýgreindra krabbameinssjúk-
linga hérlendis, sem nú mun vera hátt á
sjötta hundrað. Af þeim er talið að milli
50—60% þurfi geislameðferðar við, stór
hluti lyfjameðferðar og nær allir reglulegs
eftirlits.
Sé reiknað með 600 krabbameinstilfellum
hérlendis árlega og meðal lífslengd íslend-
inga 70 ár þá mun á ævitíma slíks meðal-
manns veikjast af krabbameini 42 þúsund og
sé reiknað með óbreyttum fólksfjölda eða
rúmum 200.000 þýðir það að ca. 20% af
heildartölu landsmanna sýkist af krabba-
meini á æviskeiði hans.
Nefnd skipuð af Bandaríkjaþingi til athug-
unar á uppbyggingu krabbameinsmeðferðar
skilaði áliti í nóvember 1970. Kemur þar
fram að árið 1930 læknuðust ca. 20% allra
krabbameinssjúklinga en árið '70 var lækn-
ingahlutfall talið 30—35%. í niðurstöðum
nefndarinnar var einnig bent á að með full-
kominni nýtingu þeirrar þekkingar og lækn-
ingarleiða er þá voru til væri hægt að lækna
um 50% krabbameinssjúklinga og eru niður-
stöður þessar í samræmi við aðrar líkar
rannsóknir.
Ástand meðferðar hérlendis
Hér á landi finnst vísir að krabþameins-
deild, sem er Geisladeild Röntgendeildar
Landspítalans. Hefur þar verið sinnt geislun
krabbameinssjúklinga með Cobolttæki því
er gefið var Ríkisspítölum og tekið í notkun
á árinu 1970. Á síðast liðnu tæpu ári hefur
verið reynt að koma þar á frekari þjónustu
með lyfjagjöfum og reglubundnu eftirliti og
koma þar nú daglega á Göngudeild á fjórða
tug sjúklinga. Göngudeild þessi er þó vart
nema nafnið, þar eð húsnæði til slíkrar
þjónustu fyrirfinnst ekki og verður að skoða
sjúklinga og veita lyfjameðferð í geislunar-
herbergi. Rá skal og tekið fram og undirstrik-
að að tækjabúnaður, húsrými svo og aðstað-
an öll er af slíkum vanefnum, að deildin get-
ur ekki sinnt því hlutverki sem henni má vera
ætlað, þ.e. að veita samþærilega meðferð
þeirri er gefin er meðal nágrannaþjóða okkar.
Til skýringar má nefna, að ekki er einu sinni
hægt að taka þátt í einföldustu samvinnu við
krabþameinsdeildir Norðurlanda um árangur
geislameðferðar sem gefin eru krabbameins-
sjúklingum, vegna tækjaskorts. í beinu fram-
haldi má benda á þá staðreynd að krabba-
meinslækningar, sem eru meðal sérhæfðustu
sviða nútíma læknisþjónustu og sá þáttur,
sem mestu fé hefur verið varið til meðal
vestrænna þjóða hefur hérlendis verið í
algeru svelti bæði hvað varðar fjármagn og
húsrými.
Eins og að framansögðu má vera Ijóst er
þörf verulegra úrbóta hvað varðar meðferð
krabbameinssjúklinga hérlendis. Nauðsyn-
legt er að komið verði upp sérhæfðri deild
eða krabbameinsmiðstöð með nauðsynlegum
tækjakosti til geislameðferðar svo og göngu-
deild til lyfjameðferðar og reglubundins eftir-
lits ásamt legudeild í beinu sambandi við
göngudeild stöðvarinnar. Æskilegast væri
að hér yrði um sjálfstæða stofnun að ræða,
er heyrði beint undir ráðuneyti og þjónaði
síðan íbúum alls landsins óháð búsetu, í ná-
inni samvinnu við sérhæfðar deildir Reykja-
víkursvæðis og sjúkrahús landsfjórðunganna.
Pá væri og rétt að krabbameinsskráning
K.í. flyttist inn á slíka krabbameinsmiðstöð.
Væri þannig unnt að koma á náinni og frjórri
samvinnu milli lækna þeirra er sinna með-
ferð og eftirliti svo og þeirra er að skrán-
ingunni standa. Samtímis mætti gera krabba-
meinsskráninguna ýtarlegri, þannig að stig
sjúkdóms ásamt gefinni meðferð yrði skráð
hverju sinni og væri þá kominn grundvöllur
að vísindalegri vinnu hvað varðar árangur
krabbameinslækninga.
Með skilningi hei Ibrigðisyf irvalda og
nokkrum stórhug væri þannig hægt að koma
á staðlaðri meðferð og eftirliti fyrir lands-
menn alla í náinni samvinnu við krabba-
meinsskrána, sem gæti orðið öðrum litlum
þjóðfélögum til fyrirmyndar.