Læknablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
191
flokkunum upp í 50 ára eru karlar í yfir-
gnæfandi meirihluta. Þessi munur minnkar
verulega í hærri aldursflokkum þar til
kemur upp fyrir 70 ára aldursflokkinn, en
þá eru konur í meirihluta.
Fram kemur í forspjalli, að sjúklingum
er skipt í ákveðna flokka, sár í maga í þrjá
flokka, sár í skeifugörn í sér flokk og sár í
magastúf (stoma) og vélinda tekin saman,
enda á þessu stigi lítil áherzla lögð á hin
síðastnefndu í þessari grein. Annars væri
athyglisvert að kanna afdrif þessara síðast-
nefndu sjúklinga á öðrum vettvangi.
Tafla II sýnir staðsetningu sáranna. Þar
sést, að af sárum í maga eru rúmlega tvisv-
ar sinnum fleiri staðsett í porthelli (ant-
rum) svarandi til Johnsons flokks III.8 Þar
sést einnig, að flest sáranna í maga, sem
samfara eru skeifugarnarsárum, eru stað-
sett í porthelli (antrum), fáein í magabol
(corpus ventriculi) svarandi til Johnsons
flokks II.2
Table II. Site of ulcer.
Site Number
antrum 338 (III)
Gastric ulcer only corpus 158 (I) 496
Gastric and duodenal ant.rum 44
ulcer corpus 7 (II) 51
Duodenal ulcer only 487
Stoma ulcer 26
Esophageal ulcer 7
Total 1067
Tafla III sýnir staðsetningu sáranna í
skeifugörn annars vegar og maga hins veg-
ar í heild. Heildarhlutfall milli maga- og
skeifugarnarsára (karla og kvenna saman)
er 1.02 (547/538).
Table III.
antrum 382(70%)
Gastric ulcer (all) 547
corpus 165(30%)
bulbus 521(96.7%)
Duodenal ulcer (all) 538
postbulbar 17(3.3%)
Ratio bet.ween gastric and duodenal ulcers
1.02 (men and women together).
Table IV. Site of ulcer (men, womenj.
Sex Men % Women %
Gastric ulcer-corpus 61 9.7% 97 22.1%
Gastric ulcer-antrum Gastric and duodenal 195 31.1% 143 32.6%
ulcer 35 5.6% 16 3.6%
Duodenal ulcer St.oma and esophageal 317 50.5% 170 38.7%
ulcer 20 3.2% 13 3.0%
Total 628 100% 426 100%
Ratio: gastric/duodenal ulcer
Men : 0.825
Women : 1.375
Tafla IV gerir nánari grein fyrir stað-
setningu sáranna með tilliti til kynja. Þar
sést, að sár staðsett í maga eru mun algeng-
ari hjá konum, þá sér í lagi í magabol
(corpus) eða 58.3% á móti 41.7% í skeifu-
görn. Aftur á móti kemur fram, að 56.1%
karla hafa skeifugarnarsár á móti 43.9%
staðsett í maga. Hlutfall milli maga- og
skeifugarnarsárs hjá konum er því hátt
(1.375) en mun lægra hjá körlum (0.825).
Kannað var, hvort hlutfall maga- og
skeifugarnarsára hefði tekið breytingum
frá 1956 á rannsóknartímabili og eins hlut-
fall innbyrðis milli staðsetningar í maga-
bol (corpus) og porthelli (antrum). Fram
kom, að hlutfall magabolssára hefur hald-
izt næsta óbreytt frá um 10—20% af heild-
arfjöldanum með dálitlum árssveiflum.
Porthellissárum (antrum sárum) hefur
heldur fjölgað úr um 20—30% í byrjun í
um 301—40% á seinni árum á kostnað
skeifugarnarsára, sem voru í byrjun um
50—60%, en 35—40% seinni árin. Ekki er
ljóst, hvort orsökin sé vaxandi tíðni port-
hellissára (antrum sára), en öllu sennilegri
er sú skýring, að meiri áherzla hafi verið
lögð á seinni árum á innlagningu súklinga
með sár staðsett í maga fremur heldur en
skeifugörn. Aðrar skýringar kunna þó að
vera á þessu.
Tafla V sýnir staðsetningu sárs með til-
liti til aldurs. Þar sést, að 61.5% sjúklinga
undir 20 ára aldri hafa skeifugarnarsár, og
26.9% sár í porthelli (antrum, prepylor-
iskt), eins og búast mátti við. Á aldrinum
21—40 ára eru skeifugarnarsár í meiri
hluta (55.3%), þar næst porthellissár
(flokkur III, antrum sár) eða 27.7%. Hins
vegar á aldrinum 41—60 ára eykst hlutur