Læknablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 38
186
LÆKNABLAÐIÐ
Table IV. Organ involvemcnt in 39 patients with Sarcoidosis.
Intra- Peripheral thoracic lymp nodes Liver Spleen Heart Sali- Nervous vary system gland Muscle Bone Joints Eye Skin
No. of patients 32 9 5 1 3 2 1 1 4 i 3 2
%o 88.9 23.1 12.8 2.5 7.7 5.1 2.5 2.5 21 2.5 7.7 5.1
43 % svo tíðni þessara einkenna sýnist ekki
önnur hér. Liðeinkenni virðast hins vegar
algengari hér. Mayock4 finnur liðeinkenni
hjá 2.2—12% sjúklinga i hinum ýmsu
könnunum, meðaltal 5.7%. Hærri tiðni er
þó í Finnlandi 27%.u Athyglisvert er, að
einn sjúklingur, íslenskur, hafði sarcoid
breytingar í synovia, sem er mjög sjald-
gæft fyrirbæri og talið algengara hjá svert-
ingjum en hvitum mönnum. Áberandi er,
hve byrjunareinkenni eru mismunandi eftir
því hvar greining hefur farið fram. Til
dæmis eru sjúklingar Berklavarnarstöðvar
og Vífilsstaðasjúkrahúss allir með lungna-
einkenni. Sjúklingar Landakotsspítala hafa
hins vegar allir liðaeinkenni, en sjúklingar
annarra sjúkrahúsa blandaðri sjúkdóms-
mynd.
Fjórða algengasta byrjunareinkenni var
erythema nodosum, hjá 17.9%. Mayock4
getur þess, hversu algengara það er í Eng-
landi, 23%, en í Bandaríkjunum 2.8%. í
Finnlandi hefur erythema nodosum fundist
í 49.4% tilfella. Húðeinkenni önnur en
erythema nodosum voru hjá 10.2% sjúk-
linga. Mayock4 getur þeirra hjá 32% sjúk-
linga. Augneinkenni hér fundust hjá 7.6%,
borið saman við 10% í Finnlandi og 21%
hjá Mayock.4
7.6% sjúklinga fundust við almenna
lungnaskoðun. Misjafnt er, hve stór hluti
sjúklinga annars staðar finnast við fjölda-
skoðanir. James" (Englandi) fann 19%
1956. Smellie og Hoyle'’ (London) fundu
46% 1960. Loks má geta þess, að Putkonen0
(Finnlandi) fann 1966, að röntgenbreyting-
Table V. Intra-thoracic Sarcoidosis and cliest X
ray (Scadding).
No. of patients %
Group I: Bilateral hilar adenopathy 13 40.5
Group II: BHA + lung inf.iltrates 7 21.9
Group III: Bilateral lung infiltrates 10 31.2
Group IV: Lung’ fibrosis 2 6.3
ar á lungnamynd voru einu einkenni
sarcoidosis hjá 27% sjúklinga.
Hópskoðanir á lungum hófust 1936 á
vegum Líknar á íslandi. Var aðallega not-
uð skyggning fram til 1945. Þá voru allir
Reykvíkingar athugaðir og þeir, sem voru
yfir 20 ára aldri, eða tuberculin jákvæðir
milli eins og tuttugu ára aldurs, röntgen-
myndaðir. Alls voru 43595 einstaklingar
skoðaðir með tuberculin prófi eða röntgen-
myndatöku.
Frá 1948 hefur Berklavarnardeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur framkvæmt
minni hópskoðanir með röntgenmyndatöku
af lungum. S.l. 10 ár 6000 til 8000 myndir
árlega.
Rannsóknarstöð Hjartaverndar hefur frá
1967 gert hópskoðun með lungnamynda-
töku á úrtaki fólks fæddu 1907—1935, bú-
settu á Reykjavíkursvæði, alls 17380 ein-
staklingum. Mætingarhlutfall var 70—
76%.8
Þessar hópskoðanir voru ekki gerðar
sérstaklega m.t.t. sarcoidosis. Engu að síður
er sjúkdómsnýgengi hérlendis áberandi
lágt, þegar tekið er tillit til fjölda skoð-
aðra.
Lungna- og hilusbreytingar á röntgen-
mynd fundust hjá 88.9%, þeirra, sem mynd-
aðir voru. Er það ekki langt frá þeim 90%
sem Sharma7 gefur upp. í þeim efnivið,
sem hér er til umræðu, hafa ekki fundist
einkenni hjartasjúkdóms sem rekja má
örugglega til sarcoidosis. Einn sjúklingur
með sarcoid-breytingar í vöðva hafði jafn-
framt myocarditis (krufning) án sarcoid-
breytingar. Tveir sjúklingar höfðu greinrof
og einn A-V rof, sem þekkt var fyrir. May-
ock lýsir hjartaeinkennum hjá 5.1%. Eru
það sumpart myocardial breytingar, leiðslu-
og sláttartruflanir, sumpart afleiðingar
lungnasjúkdóms. Lifrarstækkun höfðu
12.8% og miltisstækkun 2.5%. Hliðstæðar
tölur í athugun Mayocks eru 21% og 18%.
Enginn hafði nýrnasjúkdóm. Tveir sjúk-