Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1978, Page 79

Læknablaðið - 01.12.1978, Page 79
LÆKNABLAÐIÐ 209 un. 2. Syfja. 3. Svimi. 4. Ergelsi. 5. Taugaveikl- un. 6. Ranghugmyndir og ofskynjanir o.fl. B. Einkenni frá taugakerfi: 1. Skjálfti. 2. Þvöglumælgi. 3. Minnkuð hreyfisamhæfing. 4. Minnkuð sinaviðbrögð. 5. + ilviðbragð. 6. sjón- taugaþroti. 7. Aukinn intra-cranial Þrýstingur. II. Húðbreytingar: 1. Graftar og fitubólur í andliti, aðallega. 2. Slímhimnubólga í augum. 3. Hnútar á fótleggj- um. III. Einkenni frá meltingarvegi: 1. Lystarleysi. 2. Andremma. 3. Harðlífi. 4. Óljós magaóþægindi. Um. brom almennt og tilveru þess á lyfjamarkaði Brom er einn af haliðunum og atomþungi þess er um það bil 80. Það var notað mikið á seinni hluta 19. aldar og byrjun 20. aldar, bæði sem róandi lyf og krampavarnar (raunverulega i tonnum á sumum taugadeildum). 1 seinni tíð hefur notkun verið ákaflega lítil, þar sem önn- ur betri róandi lyf 'hafa komið í staðinn. Með- ferðar skammtar eru 3 til 5 gr. á dag og í þeim skömmtum geta eitrunar einkenni komið fram við langvarandi notkun (nokkrar vikur), en helmingunartimi broms eru 12 dagar i líkaman- um. Á markaði er Mixtura Nervina sem inni- heldur 4 til 5 mg. af hreinu bromi i hverjum 100 ml. og er það selt í 100 ml. og 400 ml. glös- um. Þá eru 2 lífræn efnasambönd monoureidar sem litið hefur verið á sem saklaus sedativa, Carbromal (lyfseðilsskylt) og Bromisoval (sem fá má án lyfseðils). Við niðurbrot þeirra brotn- ar brom jónin frá og langtíma notkun getur valdið brom eitrun. FÚLIP0LLUR — fréttir frá F.U.L. Á aðalfundi F.U.L. þ. 4. nóv. 1978 voru eftirtaldir kjörnir í stjórn: Tómas Jónsson, formaður, s. 7 46 37. Haraldur Dungal, gjaldkeri, s. 3 77 11. Geir Gunnlaugsson ritari, s. 8 33 48. Meðst j órnendur: Ingvar J. Karlsson, formaður fræðslu- nefndar, s. 8 55 83. Þórarinn Gíslason, ráðningastjóri, s. 4 27 39. Benedikt Sveinsson, formaður utanríkis- nefndar, s. 3 12 98. Varastjórn: Torfi Magnússon. Halldór Jónsson (ísafjörður). Ingibjörg Georgsdóttir, ráðningarstjóri, s. 1 18 10. LEIGUSKIPTI — IBÚÐ Fjölskylda, sem hyggst flytja til Islands og vera þar í u.þ.b. eitt ár, vill leiguskipti á ibúð í Stokkhólmi og Reykjavík. Ibúðin í Stokkhólmi er ný þriggja herbergja á mjög góðum stað. Skipti miðast við fjögurra herbergja íbúð í Reykjavík. Leigutimi getur verið 1 ár eða eftir sam- komulagi. Allar nánari upplýsingar veitir: Sverrir Einarsson, Sorögatan 11, 1. tr., 163 41 Sponga, Svíþjóð, eða: Helga Einarsdóttir, síma 4 28 31, Kópavogi, á kvöldin.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.