Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 6

Læknablaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 6
122 LÆKNABLAÐIÐ LAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafclag íslands- og l|r Læknafclag Rcykjavikur 65. ÁRG. — JÚLÍ 1979 UM LÆKNARING Á aðalfundi Læknafélags íslands árið 1977 var samþykkt tillaga frá Félagi ís- lenskra lækna í Bretlandi þess efnis, að stefna skuli að því að halda læknaþing eitt- hvað í líkingu við það, sem Svíar halda ár- lega og kalla ,,Riksstámmu“. Stjórn L. í. afhenti tillögu þessa Námskeiðs- og fræðslu- nefnd læknafélaganna, sem tók að sér fram- kvæmdir í málinu og svo sem læknum er kunnugt, hefur nú verið ákveðinn staður og stund fyrir þingið. Markmiðið með þingi sem þessu er að gefa sem flestum læknum tækifæri til að hittast og kynnast störfum hvers annars. Jafnframt gæti þing sem þetta, ef vel tekst til, gefið nokkra þverskurðarmynd af fræði- legri stöðu íslenskrar læknisfræði eins og hún er nú. Að þessu sinni hefur verið ákveðið að þingið standi aðeins í 2 daga, en á eftir því komi hið árlega námskeið fræðslunefndarinnar. Takist hins vegar vel til er hugsanlegt, að í framtiðinni verði þing haldið annað hvert ár og þingtíminn jafnvel lengdur um einn dag, ef nægilegt efni berst að. Þessar línur eru skrifaðar til að minna lækna á þingið og til að minna á, að það er undir þátttöku þeirra, ekki aðeins óvirkri, heldur líka virkri, hvernig til tekst. Það er ástæða til að beina þeirri áskorun sérstak- lega til lækna á Reykjavíkursvæðinu, sem fjölmennasta svæðahópsins, að gera sem fyrst ráðstafanir til að fá staðgengla, svo að þeir geti sem flestir tekið þátt í öllu þinginu, því að það hefur viljað brenna við, að læknar á þessu svæði hafi tekið þátt i fundum og þingum, sem haldin hafa verið hér í Reykjavík, á hlaupum, en þannig þátt- taka í tilvonandi læknaþingi getur á engan hátt talist sæma þeim læknahópi, sem er á Reykjavíkursvæðinu. Nefndin vili einnig vekja athygli á, að auk hinnar fræðilegu dagskrár er ákveðið, eins og raunar kemur fram í auglýsingu, að hafa kvöldskemmtun fyrir þátttakendur, væntanlega á Hótel Sögu. — Þessi kvöld- skemmtun er nýstárleg að því leyti, að hér er ekki um að ræða hefðbundið borðhald með hástemmdum ræðuhöldum og dansi á eftir, heldur verður snæddur léttur kvöld- verður og nemendur og/eða kennarar Söng- skólans í Reykjavík ásamt hljóðfæraleikur- um munu skemmta gestum með söng og hljóðfæraleik í mismunandi léttum dúr í eina og hálfa til tvær klukkustundir. Á eftir gefsí síðan tækifæri til að sitja og skrafa saman yfir glasi fram undir miðnætti. Er það von nefndarinnar að þingheimur taki þessari nýbreytni vel og fjölmenni á kvöld- skemmtunina. Nefndin vill skora á alla íslenska lækna nær og fjær, að reyna að mæta til þessa fyrsta læknaþings, svo að tilgangi þess, sem er að efla fræðilegan og félagslegan skilning innan stéttarinnar, verði náð. Árni Björnsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.