Læknablaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 8
124
LÆKNABLAÐIÐ
má þó gera ráð fyrir, að fleiri mjög veik-
ir sjúklingar vistist á Borgarspítala en
öðrum spítölum á Reykjavíkursvæðinu
vegna tilvistar slysadeildar. Samanburður
dánartölu var reiknaður með X2 aðferð.
NIÐURSTÖÐUR
Innlagnir karla voru 253 og kvenna
77 (table I). Kynjahlutfall var 3.3:1. Dán-
artala hækkar verulega með aldri, frá
8% á aldrinum 41-50 ára til 33% hjá
sjúklingum eldri en 70 ára. Heildardánar-
tala karla og kvenna er svipuð, þó að
meðalaldur kvenna (66.9 ár) sé nokkuð
hærri en meðalaldur karla (61.8 ár).
Heildardánartala beggja kynja er 21.8%,
en var fyrir stofnun hjartagæsludeildar
29%. Dánartala var hæst fyrsta árið, 1972,
eða 27.9%, en hin árin svipuð, 18.5-21.5%.
Hér hefur einungis verið rætt um dánar-
tölu þeirra, sem innrituðust á deildina, og
hefur sá háttur einnig verið hafður á í
þeim rannsóknum, erlendum og innlend-
um, sem vitnað verður til. Nær allir þeir
sjúklingar, sem svo veikir eru taldir, að
umönnun þeirra þoli enga bið, em fluttir
á slvsadeild Borgarspítalans. Samkvæmt
skýrslum slysadeildar voru 47 sjúklingar,
sem þar létust eða voru látnir við komu,
taldir devja úr kransæðastíflu- Sextíu og
átta sjúklingar eða 20.6% þeirra, sem
lögðust inn á sjúkrahúsið, komu af slysa-
deild. Eins og áður segir, má gera ráð
fyrir, að þeir séu að öðm jöfnu veikari
en hínir, er koma aðrar leiðir, enda revnd-
ist dánartala þeirra vera 29.4% (20 sjúkl-
ingar). Endurlífgun var talin takast í 30
skipti- Af þeim létust 16 síðar í sömu
legu, þar af 6 innan sólarhrings. Fjórtán
endurlífgaðir sjúklingar voru útskrifaðir.
Sex manns eða 8.3% þeirra, sem létust,
dóu á fyrsta klukkutíma eftir komu, en
40.2% létust fyrsta sólarhringinn (figure
I). Þrjátíu og sjö sjúklingar létust af
losti og hjartabilun, en 28 af hjartsláttar-
truflunum. Aðrar dánarorsakir voru
thrombosis mesenterii (1), heilablóðfall
(2) og rof á hjartavöðva (4). Einn sjúkl-
ingur lést eftir hjartaþræðingu og mynda-
töku á kransæðum.
Fyrirbcðar (prodromata) eru hér talin
þau einkenni, sem hófust eða breyttust
síðasta mánuð fyrir komu (table II). Hver
sjúklingur er aðeins talinn einu sinni og
þá miðað við aðaleinkenni. Fyrirboði var
í langflestum tilvikum angina pectoris
(90.6%). Dánartala þeirra, sem lýstu for-
boðaeinkennum, var lægri (13.6%) en
þeirra, sem ekki lýstu slíkum einkennum
(32-2%; p<0.01). Af 133 sjúklingum, sem
vitað var, að höfðu haft langvarandi
—o—Women
—— Both sexes
Fig. 1- — The time of death of the non-
survivors.
TABLE I. Age and sex, mortality.
Age MEN WOMEN BOTH SEXES M:F
Total Died n % Total Died n % Total Died n %
<40 3 3
41—50 33 3 9.1 3 0 36 3 8.3 11.0:1
51—60 75 14 18.7 17 1 5.9 93 15 16.3 4.4:1
61—70 75 15 20.0 19 4 21.1 94 19 20.1 3.9:1
>71 67 24 35.8 38 11 28.9 105 35 33.3 1.8:1
253 56 22.1 77 16 20.7 330 72 21.8 3.3:1