Læknablaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
135
joniserandi og hefur við rannsóknir á dýr-
um reynst ótrúlega lítið eitrað. Metriza-
mide var í fyrstu notað eingöngu við rann-
sóknir á skúmsholi (cavum subarachnoi-
dale), en allra seinustu árin hefur það ver-
ið notað í tilraunaskyni við útlimaæðaskoð-
anir á fólki og hafa þær æðaskoðanir
reynst með öllu sársaukalausar að vægri
hitatilfinningu undantekinni.14 Efnið er
ennþá mjög dýrt og kemur ekki til greina
í daglegri notkun.
Ýmislegt hefur verið gert til að lina ó-
þægindi þau, sem æðaskoðun með skugga-
gjafa er samfara, með svæfingu, með hæg-
fara innspýtingu skuggaefnisupplausnar
eða með notkun lítils magns skuggaefnis,
t.d. 20—30 ml. í senn.
Það mun hafa verið í upphafi þessa ára-
tugs sem byrjað var að nota lidocain sem
deyfingarlyf í æð við útlimaæðaskoðanir
með joðupplausn og hefur notagildi þess-
arar aðferðar verið gerð skil í mörgum rit-
smíðum.6 7 30 11
Lidocain (Xylocain) hefur löngum verið
notað til staðdeyfingar, til innspýtingar í
bláæð við hjartaóreglu og til inndælingar
í slagæð til að koma í veg fyrir æðasam-
drátt við æðaþræðingar.11 Lidocain er mjög
fljótvirkt efni og með fáar aukaverkanir
í venjulegum skömmtum. Helmingunartími
þess í blóði er u.þ.b. 30 mín. Lidocain sog-
ast mjög fljótt burt og getur náð mikilli
þéttni utan æða (ekstravasculert) sér í
lagi í heilavef.
Aukaverkanir lidocain eru sljóleiki, ert-
ing á heila, kippir eða krampar, öndunar-
örðugleikar, meðvitundarleysi og lost.
Skammtur sem getur valdið forstigi að
krömpum (sub-convulsive) hjá heilbrigð-
um manni, er talinn liggja í krigum 750
mg. i.v. á 20 mínútum. Skammta upp í 880
mg.—1040 mg i.v. á 8—10 mínútum þarf
til að valda allverulegum fylgikvillum.5
Um verkunarmáta Lidocains er lítið vit-
að, en talið er að efnið deyfi innanþekju
æðaveggjanna og auki þar með sársauka-
þröskuld þeirra við efnafræðilegri ertingu
skuggaefna. Verkunin á sér stað á auga-
bragði og tilraunir hafa sýnt jafngóða eða
jafnvel betri deyfandi verkun lidocains, sé
því sprautað samtímis skuggaefninu, en
nokkrum sekúndum á undan því.° 10 Lido-
cain hefur ýmist verið notað sem 1% eða
2% upplausn, 1 ml. á móti hverjum 10 ml.
skuggagjafa, en samkvæmt heimildum
munu deyfingaráhrif hvorrar upplausnar í
æð vera mjög svipuð.8 7 10 Ef notuð er 2%
upplausn Lidocains og Angiografin í hlut-
föllunum 1:10 og sprautað er 50 ml.
skuggagjafa í einu, sem er stærsti skammt-
ur í einni innspýtingu (t.d. við ósæðar- og
útlimaæðaskoðun) og tvær tökur gerðar
á u.þ.b. 20—30 mínútna fresti verður heild-
armagn lidocains 200 mg., eða langt fyrir
neðan krampavaldandi skammtinn. Við
rannsókn okkar hefur samanlagður
skammtur lidocains aldrei farið yfir 100
mg. á 20—30 mínútum og er það vel undir
hámarksskammti, sem er 120 mg. í einni
innspýtingu, samkvæmt skoðun ýmissa
greinarhöfunda.0 Með hugsanlegum fylgi-
kvilla í huga er þó talið skynsamlegt að
setja efri leyfilegu mörk samanlagðs
skammts við 200 mg. lidocain í æð á 20—
30 mínútum. Við þessa ákvörðun er ekki
tekið tillit til þeirra 50—60 mg. lidocains
1%, sem notuð eru til staðdeyfingar. Ef
svona hóflegt magn er notað, eru frábend-
ingar á notkun lidocains við útlimaskoðan-
ir engar, að frátöldum sino-atrial, atrio-
ventriculer eða intraventriculer leiðslu-
truflun á háu stigi og ofnæmi við staðdeyf-
ingarlyfjum. Við æðaskoðun á handl. með
þræðingu ber að gæta þess að endinn á
æðaleggnum sé staðsettur fjarlægt við upp-
tök hálsæðastofna.3
Á Röntgendeild Landspítalans hefur ver-
ið notað 50 ml. Angiografin + 5 ml. lido-
cain 1% við aortofemoral-angiografíu, 12—
14 ml., 1:10 lidocain/skuggaefnisblöndu við
sérinnspýtingu í æð og 10 ml. 1:10 lidocain
/skuggaefnisblöndu við eina æðaskoðun á
griplim.
Blandan; skuggaefni + deyfingarlyf,
rýrir á engan hátt gæði æðaskoðunar.
Skuggaefnisþéttni í æðum er sú sama hvort
lidocain er notað eða ekki. Vegna deyfandi
áhrifa lidocains er unnt að notast við stærri
skammta en 50 ml. ef þörf krefur, víða er
notað mun meira magn skuggaefnis eða
allt upp í 80—120 ml. í einni innspýtingu.
Lidocain ætti í raun og veru í krafti
fljótvirkrar útvíkkunar smærri æða að
gera það að verkum að minni æðar t.d. á