Læknablaðið - 01.07.1979, Síða 44
142
LÆKNABLAÐIÐ
SUMMARY
This paper reports a survey of all recorded
autopsies in Xceland 1930—1967 with special
attention to hydatid disease. The total number
of autapsies performed was 7840, and 196 cases
of hydatid disease were found. Among them
were 108 women and 88 men. Of all the people
born after 1900 only five have taken the disease,
as is known from the autopsy reports. The last,
living Echinoc. found in this country, was on
the 26th of Sept. 1969 and this case is decribed.
It is obvious that hydatid disease has virtually
been eradicated in Iceland.
HEIMILDIR
1. Dungal, N. Echinococcus in Iceland (1946):
American Journal of the Medical Scienses.
212:2-17, July 1946.
2. Dungal, N. Eradication of hydatid disease in
Iceland (1957): New Zealand Medical Jour-
nal, June 1957.
3. Jónsson, B. Læknablaðið 1962. 46. árg., 1.
hefti, bls. 1—13.
4. Krufningsskýrslur Rannsóknastofu Háskól-
ans 1930—1967.
5. Lichtman (1949): Disease of the Liver: 750.
6. Sherlock, S. Diseases of the liver and biliary
system. (1959). 546-47.
NÝSTOFNAÐ FRÆÐAFÉLAG ÍSLENZKRA HEIMILISLÆKNA
Þann 14. sept. 1978 var haldinn stofn-
fundur nýs félags, sem hlaut nafnið Fræða-
félag íslenskra heimilislækna. Fundurinn
var haldinn í Domus Medica í tengslum
við læknaþing, og sat 21 læknir fundinn.
Starfssvæði félagsins er landið allt, en að-
setur þess er í Reykjavík. Aðalmarkmið
félagsins er að vinna að því að heimilis-
lækningar á fslandi séu stundaðar sam-
kvæmt ýtrustu kröfum, sem gerðar eru til
heimilislækna á hverjum tíma. Lög félags-
ins kveða nánar á um þær leiðir, sem fé-
lagið vill fara til að ná settu marki. Ber
þar mest á eindregnum vilja til að hafa
sem besta samvinnu við ráðandi öfl í heil-
þrieðis- og menntamálum, en auk þess vill
félagið stuðla að eflingu rannsóknarstarfa
í heimilislækningum, verða virkur þátttak-
andi í alþjóðasamstarfi félaga heimilis-
lækna, m. a. með aðild að WONCA.
Félagar geta allir orðið, sem hafa heim-
ilislækningar, eða skyldar greinar að aðal-
st.arfi, eða stunda skipulagt viðurkennt
nám í þessum greinum. Skyldar greinar
teliast t. d. embættislækningar, faralds-
fræði og heilbri'iðisfræði. Félagsaðild get-
ur verið með fernum hætti:
1) Félagi: Á við um þá, sem uppfylla of-
angreind skilvrði, hafa fengið inn-
göngu í félagið og eru skuldlausir við
það.
2) Aukaféiagi: Á við bá, sem eru starf-
andi erlendis og geta því ekki tekið
þátt í félagsstörfum heima, svo og þá,
sem stunda nám í heimilislækning-
um og skyldum greinum.
3) Virkur félagi: Á við um þá félaga,
sem staðist hafa og endurnýjað vissar
fræðilegar kröfur, sem félagið ákveð-
ur, og hlotið fyrir það viðurkenningu
félagsins.
4) Heiðursfélagi.
Félagsgjöld voru ákveðin kr. 10.000,—
fyrir félaga og virka félaga, og kr. 2.500,—
fyrir aukafélaga. Næsti aðalfundur verður
haldinn í sept. 1979 í Domus Medica og
verður einnig í tengslum við læknabing.
Félagið mun þá gangast fyrir málþingi
um heimilislækningar og verða gerðar ráð-
stafanir til að fá hingað til lands prófess-
or M. Brennan frá London, Ontario, Can-
ada, til skrafs og ráðagerða.
Félagið hefur í vetur gengist fyrir tíma-
ritafundum, sem hafa tekist vel, þótt þátt-
taka hefði mátt vera meiri. Hefur félagið
notið stuðnings og fyrirgreiðsiu borgar-
læknis við bessi fundahöld og kann hon-
um góðar þakkir fvrir. Þá hefur verið gef-
ið út fjölritað fréttabréf um ýmis efni
varðandi heimilislækningar, og er ætlunin
að gefa út slík fréttabréf reglulega og birta
m. a. upplýsingar um ráðstefnur og al-
þjóðaþing heimilislækna.
Stjórn félagsins skipa: Eviólfur Þ. Har-
aldsson, Guðmundur Sigurðsson, Leifur N.
Dungal, Ólafur F. Mixa og Haukur S.
Magnússon.