Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ
229
Guðmundur Björnsson
GLÁKA Á GÖNGUÐEILD
Ylirlit yfir glákusjúklinga á göngudeild augndeildar
Landakotsspítala 1973-—1978
1 grein þessari segir frá glákusjúklingum á
göngudeild augndeildar Landakotsspítala frá
því göngudeildin tók til starfa haustið 1973 til
ársloka 1978.
Fjallað er um hægfara gláku (glaucoma
simplex, open angle glaucoma), sem er lang
algengust glákusjúkdóma og ein tíðasta orsök
sjóndepru meðal roskins fólks. Sagt er frá við-
leitni Hjartaverndar í leit að gláku á skipu-
legan hátt. Rætt er um nauðsyn þess, að augn-
þrýstingsmæling verði almennt gerð, þar sem
hópskoðanir sjúklinga fara fram og einnig á
sjúkrahúsum, en meirihluti sjúklinga innan
þeirra veggja er á glákualdrinum.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Fjallað er um sjúklinga, sem voru til með-
ferðar á glákudeild augndeildarinnar frá 1.
október 1973 til 31. desember 1978. Sjúklingar
eru sendir til deildarinnar af augnlæknum,
öðrum læknum og Rannsóknarstöð Hjarta-
verndar. Ekki er gerð skipuleg leit að gláku
meðal almennings af hálfu deildarinnar.
Rannsóknaraðferðir eru þær sömu og tíðkast
á glákudeildum við háskólaspítala í nágranna-
iöndunum. Rannsóknartæki eru í sama gæða-
flokki og á sambærilegum deildum, t.d. Haag-
Streit 900 rauflampi, með Goldmann’s „appla-
nations“-augnþrýstingsmæli og Goldmann’s
sjónsviðstæki.
Tæknimaður annast sjónsviðsmælingar, en
aðrar rannsóknir eru gerðar af augnlæknum
og aðstoðarlæknum á augndeild. Sömu skil-
merki eru notuð við greiningu hægfara gláku
og víðast í nágrannalöndum, sbr. kaflann um
glákugrun.
Sjúklingar með „pseudoexfoliation" á auga-
steinshylki eru flokkaðir undir hægfara gláku,
en ekki hafðir i sérflokki. Ekki er fjallað um
arfgengi hægfara gláku í þessu uppgjöri.
I 1. töflu er skráð tala glákusjúklinga, sem
leituðu til stöðvarinnar í fyrsta skipti ár hvert
eftir að starfsemi hófst. Höfðu sumir sjúkling-
anna gengið með sjúkdóminn og verið í með-
ferð i mörg ár, er þeir komu á stöðina í fyrsta
sinn.
Samtals hafa 810 sjúklingar verið í meðferð
á glákudeildinni og er yfirgnæfandi meiri hluti
þeirra með hægfara gláku eða 678 og fylgst er
Frá Augndeild Landakotsspítala.
Greinin barst ritstjóm 10. júni 1979.
Send i prentsmiðju 12. júní 1979.
Table I
Tlie Outpatient Deyartment of St.Josepli’s
Hospital, Landakot, Re-ykjavík, Iceland: Num-
ber of patients attending the Glaucoma Clinie
for the first time from 1. Oct 1973 to 31. Dec.
1978.
Total number Glaucoma Primarium Acut\um or suba- Simplex cutum Glau- coma suspec- ts Glau- coma sccun- darium
1973 191 169 2 19 1
1974 232 195 2 35
1975 127 114 12 i
1976 136 111 i 21 3
1977 83 53 2 26 2
1978 47 36 11
Total 816 678 7 12 U 7
reglulega með 124 sjúklingum vegna grun-
semda um gláku.
Hœgfara gláka: Uppgjörið nær yfir sjúk-
linga, sem voru á lífi 31. des. 1978, samtals 624,
en 54 höfðu dáið frá því göngudeildin tók til
starfa, (1. október 1973) og er þeim sleppt í
þessari samantekt.
NIÐURSTÖÐUR
Dreifing eftir búsetu: 1 2. töflu er sýnd dreif-
ing sjúklinga með hægfara gláku eftir búsetu,
ásamt dreifingu í aldursflokkum. Aldur er
miðaður við dagsetningu uppgjörs.
Á höfuðborgarsvæðinu voru búsettir 405
sjúklingar (198 karlar og 207 konur) eða um
65% af öllum sjúklingum. Höfuðborgarsvæðið
nær yfir Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaup-
stað, Mosfellssveitarhrepp, Kópavogskaupstað,
Garðabæ, Bessastaðahrepp og Hafnarfjörð.
Sjúklingar af öðrum landssvæðum skiptast
þannig:
Vesturlandskjördæmi 84, (50 karlar, 34 kon-
ur), Vestfjarðakjördæmi 18, (9 karlar, 9 kon-
ur), Norðurlandskjördæmi vestra 21, (16 karl-
ar, 5 konur), Norðurlandskjördæmi eystra 10,
(6 karlar, 4 konur), Austurlandskjördæmi 16,
(6 karlar, 10 konur), Suðurlandskjördæmi 47,
(26 karlar, 21 kona), Reykjaneskjördæmi, (að
frádregnum hluta af höfuðborgarsvæðinu), 22,
(11 karlar, 11 konur).
Áberandi er hversu sjúklingar utan höfuð-
borgarsvæðisins eru margir úr Vesturlands-