Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 58
260 LÆKNABLAÐIÐ Halldór Friðgeirsson, Ólafur Ólafsson* UPPLÝSINGASAFN HEILBRIGÐISKERFISINS I (HEALTH DATA BANK) í greininni er skýrt frá tölvukerfi fyrir skráningu og úrvinnslu á vistunarupplýs- ingum spítala á íslandi. Tölvukerfið var þróað og hannað á árunum 1975—1978. Það hefur verið prófað og tekið í notkun á Sjúkrahúsi Akraness.13 í greininni segir frá markmiðunum með notkun kerfisins, kerf- inu er lýst í aðalatriðum, þar á meðal eru lýsingar af inntaki, upplýsingaflæði og út- taki. Síðast er samanburður við markmið. INNGANGUR í lögum nr. 58/1978 og reglugerð nr. 411/1973 er kveðið á um að landlæknis- embættið sjái um skipulagningu skýrslu- gerða og annist útgáfu heilbrigðisskýrslna í sambandi við viðkomandi deildir heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Skýrslugerðinni ber að haga á þann veg að unnt sé að: 1. Fylgjast með heilsufari landsmanna ut- an og innan sjúkrastofnana og þeim breytingum, sem verða þar á frá ári til árs. 2. Hafa faglegt eftirlit með starfi og starfs- aðstöðu heilbrigðisstarfsmanna, og þá ekki síst aðbúnaði sjúklinga. Áður en lengra er haldið er rétt að finna þessari skýrslugerð stað í upplýgingakerfi heilbrigðiskerfisins. Upplýsingavinnsla í heilbrigðiskerfinu Heilbrigðiskerfið er bæði yfirgripsmikið og flókið. Af hagkvæmnisástæðum er hin- um ýmsu verkefnum í heilbrigðiskerfinu skipt niður á ýmsar sérhæfðar stofnanir, deildir og vinnuhópa. Þessi uppskipting verkefna í heilbrigðiskerfinu er í anda við hefðbundnar aðferðir við skipulag skipu- * Frá landlæknisembættinu. Greinin barst ritstjórn 17/3/79. Send í prent- smiðju 20/4/79. lagsheilda (stofnana, fyrirtækja og félaga), sem byggist á því að skipta starfseminni upp í afmörkuð verkefni og starfsþætti sem sérstakar deildir, vinnuhópar eða ein- staklingar sjá um. Hinir ýmsu starfsþætt- ir eru síðan tengdir saman á þann hátt sem nauðsynlegt, hagkvæmt og eðlilegt telst.1 6 8 Þessi uppskipting verkefna hefur í för með sér einföldun, sem er auðvelt að sýna fram á með dæmum. Skipulagsheildin sam- anstendur af því sem við getum kallað bún- að (e. resources) með því er átt við mann- afla, þekkingu, húsnæði, tækjabúnað og fjármagn. Við stjórnun skipulagsheildar- innar er notað stjórnkerfi hennar. Þetta stjórnkerfi er oft flokkað í tvö undirkerfi, sem eru ákvarðanakerfi og upp- lýsingakerfi. Þessi tvö undirkerfi eru hornsteinar allra stjórnkerfa. f ákvarðanakerfinu fer öll ákvarðanataka fram. Upplýsingakerfið fóðrar hins vegar ákvarðakerfið á upplýs- ingum (gögnum) til ákvarðanatöku og einnig upplýsingum um afleiðingar ákvarð- ana. Um upplýsingakerfi skipulagsheilda gildir sama reglan og um önnur verkefni. Hagkvæmast hefur reynst að skipta upp- lýsingakerfum skipulagsheilda niður í af- mörkuð verkefni og vinna þau sérstaklega. Með þessu móti fæst mikil einföldun. Þess ber að geta að mikið hefur verið reynt að þróa og hanna heildarupplýsingakerfi fyrir stórar skipulagsheildir, þar á með soítala, án þess að þess væri gætt að afmarka og skipta upp verkefnum. Þessi stóru uoplýs- ingakerfi hafa orðið mjög flókin os dýr og hafa í fáum orðum reynst illa.112 Þess vegna hefur á síðustu árum verið far- ið æ meir inn á þá braut að skipta upp- lýsingakerfum skipulagsheilda í vel af- mörkuð og viðráðanleg verkefni, sem síðan eru tengd saman á hagkvæman hátt. í upplýsingakerfinu er nauðsynlegt að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.