Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 50
254 LÆKNABLAÐIÐ Bandaríkjunum hafa verið bólusett börn á aldrinum 1 til 12 ára, bæði piltar og stúlk- ur. Er stefnt að því að mynda ákveðna mót- stöðu („herd immunity") eða minnka fjölda næmra í þeim aldurshópi, sem tal- in er mest hætta á að beri smit í ófrískar konur, oftast mæður barnanna. Er ætlun- in að útrýma þannig rauðu hunda sýking- um úr umhverfi mæðranna. Á þannig að verja einn aldurshóp með bólusetningu annars. Bretar, Svíar, Finnar o. fl. Evrópu- þjóðir hafa aftur á móti bólusett 12 til 14 ára telpur með það fyrir augum að verja hverja einstaka konu með sem hæstum mótefnum á barneignaaldri. Fylgjendur beggja skoðanahópanna hafa síðan tekið upp bólusetningu valdra hópa, þ. e. kvenna strax eftir fæðingu, eða kvenna sem nota einhverjar getnaðarvarnir í nokkrar vik- ur á eftir bólusetningunni. Varðandi val á aldurshópi sem bólusetja á hér ber að athuga: 1. Hegðun rauðra hunda á íslandi og möguleika á að fylgjast með faröldr- um annars vegar og ófrískum konum hins vegar. 2. Endingu mótefna, bæði eftir eðlilega sýkingu og bólusetningu og hugsan- lega þýðingu endursýkinga í faröldr- um fyrir varanlegt ónæmi. 3. Heilbrigðisþjónusta og „stöðugleiki" íbúanna m. t. t. flutninga til og frá fslandi. 1. Munur er á hegðun rauðra hunda á íslandi annars vegar og í Bandaríkjunum og Bretlandi hins vegar. f báðum þessum þéttbýlu löndum eru rauðir hundar land- lægir, en á nokkurra ára fresti koma stærri faraldrar. Horstmann o. fél., Farquhar o. fél. og Lehan o. fél.21 22 43 53 hafa sýnt, að þrátt fyrir 85% til 90% ónæmi í hópi, sýkjast hinir neikvæðu samt eins og sýna má fram á með mótefnamælingum og þeir sem hafa upphaflega lægstu mótefnin, endursýkjast. Oft eru sýkingar einkenna- lausar. Weinstein og Chang83 bera saman við mænuveiki og benda á, að þótt mænu- veiki hverfi úr þjóðfélaginu við 85% ónæmi séu þetta tvær ólíkar sýkingar. Mörg önnur atriði skipta máli. Nægir að- eins að nefna að smitleið mænuveiki er faecal-oral smit og skiptir almennur þrifn- aður þar miklu máli, en rauðir hundar eru öndunarfærasmit, sem er erfiðara viðfangs. Telja sumir höfundar að mynda þurfi allt að 100% ónæmi í þjóðfélaginu ef eigi að stöðva rauðu hunda sýkingar. Þrátt fyrir bólusetningarherferð í Bandaríkjunum, þar sem milljónir barna og fullorðinna hafa verið bólusettar hafa samt komið upp far- aldrar á stöðum þar sem 85% barna hafa verið ónæm35 48 so. I þessum faröldrum hefur sýking færst meira yfir á eldri ald- urshópa, táninga, þ. e. börnin eru varin með bólusetningu en í eldri aldurshópum eru samt nægilega margir næmir til að faraldur nái sér niðri. Áður en bólusetningar hófust í Banda- ríkjunum, komu faraldrar á 6 til 10 ára fresti. Af konum á barneignaaldri voru þar um 85% ónæmar. Rauh08 fann, að árið 1970 voru 15% næmar á aldrinum 12 til 19 ára en 1975 eru 30% næmar. Á árunum 1970—’75 voru börn 1 til 12 ára bólusett og með því komið í veg fyrir far- aldur sem búist var við um 1972. í þeim faraldri hefði hluti telpna sýkst og tala næmra 12—19 ára nú líklega haldist óbreytt. Ekki er vitað hvernig bólusetn- ingarmótefnin haldast, svo hugsanlegt er að stór hluti kvenna bólusettra í æsku hafi lág eða engin mótefni 10 til 20 árum eftir bólusetningu. Með því að hindra far- aldra í barnahópi og þar með myndun eðli- legs ónæmis gæti tala næmra orðið hærri í aldurshópum á barneignaaldri og faraldur þá náð sér niðri sérstaklega vel í þeim hópi. í Bretlandi fann Hambling38 aftur á móti, að 1970 voru 14.3% stúlkna á aldr- inum 15 til 19 ára neikvæðar þar en 1975 voru 8.6% neikvæðar, þ. e. færri. Telur hann hér vera að koma í Ijós áhrif bólu- setningar stúlkna á aldrinum 14 ára. Auk barnabólusetningar vilja því ýmsir í Banda- ríkjunum hefja endurbólusetningu 12 ára telpna til að verja þær á barneignaskeiði, þ. e. bæta bresku framkvæmdinni ofan á þá bandarísku. Hegðun rauðra hunda er önnur á ís- landi. Hér koma faraldrar en rauðir hund- ar virðast hverfa úr landi þess á milli. Síð- ustu faraldrarnir voru 1963—’64 og ’72— 75. Frá því í október 1975 til i júní ’73
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.