Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ
249
legan mun á veikindum samanborið við
óbólusett börn. Liðeinkenni eru þar mjög
væg eða engin2 0 10 80.
Sá aldurshópur, sem margir telja æski-
legast að bólusetja eru stúlkur rétt að
byrja kynþroskaskeiðið. E-r þessi hópur
því á mörkum barnsaldurs og fullorðins-
ára hvað tíðni aukaverkana snertir. Bött-
inger o. fél.11 og Enell o. fél20 bólusettu
12 til 14 ára stúlkur. Tölfræðilegur munur
á tíðni aukaverkana virtist ekki vera á
bólusettu hópunum og óbólusettum sam-
anburðarhópum. í rannsókn Böttinger o.
fél. fengu 16% liðverki og 1.4% liðbólg-
ur eftir bólusetningu með RA 27/3, 15%
liðverki og 2.2% liðbólgur eftir HPV-77
og 17% liðverki og 1.7% liðbólgur eftir
notkun Cendehill. í rannsókn Enell o. fél.
voru 5% með liðóþægindi eftir bólusetn-
ingu með Cendehill, 8% eftir RA 27/3 og
HPV-77 DE5. í báðum þe-ssum rannsókn-
um höfðu 5% í óbólusettum samanburðar-
hópum liðeinkenni á sama tíma. Aðrir
höfundar finna lítil eða engin merki un\
liðóþægindi í þessum aldurshópi87 26 ls.
Við bólusetningu fullorðinna eykst mjög
tíðni aukaverkana, aðallega liðeinkenna.
Tafla III sýnir niðurstöður ýmissa rann-
sókna, bæði heildartíðni aukaverkana og
tíðni liðeinkenna.
Þó að Cendehill bóluefnið virðist valda
sjaldnar liðeinkennum fengu 5 af 28
drengjum á aldrinum 13—14 ára liðein-
kenni eftir bólusetningu með Cendehill
stofni í rannsókn Landrigan o. fél.50. í
samanburðarhópi óbólusettra og ósýktra
fengu 3.9% liðeinkenni. Var þetta í rauðu
hunda faraldri í Minnesota. 65% stúlkna
og 44% drengja 13 ára og eldri sem sýkt-
ust af eðlilegum (kliniskum) rauðum
hundum, og voru ekki bólusett fengu lið-
einkenni. Er það hærra hlutfall en eftir
bólusetningu. Skal þó tekið fram að ekki
er vitað hver tíðni hefði orðið ef sub-
kliniskar náttúrulegar sýkingar hefðu ver-
ið taldar með eins og gert er við bóluse-tn-
ingu.
Flest einkenni koma fram á fyrstu 3 vik-
um eftir bólusetningu51215 @2, o-g koma
liðeinkenni s-íðast. Standa liðeinkenni oft-
ast fáa daga eftir RA 27/3, lengst 8 daga5.
HPV-77 DE5 getur valdið liðóþægindum
síðar og geta þau staðið lengur, allt að 2
mánuði5 32. Virðast einkennin oftast vera
frá hnjám, fingrum eða höndum og úln-
liðum, en öll liðamót geta gefið ein-
kenni5 20 50.
Fyrsta rauðu hunda bóluefnið, sem kom
á markað var HPV-77 DK12 en stuttu síð-
ar komu fram HPV-77 DE5 og Cendehill.
Fljótlega kom í ljós, að tíðni liðeinkenna
o-g skyntruflana eftir notkun HPV-77 DK12
var miklu hærri. Komu þau einkenni oft
síðar í ljós og stóðu miklu lengur en eftir
notkun hinna bóluefnanna31 72 Varð þetta
til þess að HPV-77 DK12 var tekið af
markaði. Lýst hefur verið tveim sjúkdóms-
myndum eftir HPV-77 DK12: A) Verkj-
um í höndum og úlnliðum, sem komu að
næturlagi. Stóðu þeir upp undir klukku-
stund í senn og gátu slík köst orðið fleiri
en eitt sömu nóttina. Fylgdi nálardofi í
fingrum og stundum máttleysi. Engar lið-
bólgur fylgdu. Mismunandi var, hversu
marga sólarhringa óþægindi stóðu, en þau
hurfu síðan endanlega. B) Endurtekin ein-
kenni komu frá hnjám, þ. e. ver-kur í hnés-
bót (fossa poplitea), verstur að morgni og
gat sá bólusetti þá ekki rétt úr hnénu.
Átti hann erfitt um gang, tyllti í fótinn
TAFLA III
RA 27/S HVP-77 DE5 Cendehill
Höfundar Heildartíðni aukaverkana Liðeinkenni Heildartíðni aukaverkana Liðeinkenni Heildartíðni aukaverkanu Liðeinkenni
Dudgeon o.fél.15 Grillner o.fél.32 Carlsson o.fél.12 Freestone o.fél29 Weibel o.fél.82 Best o.fél.ö 28/43* 34% 62% 18/28 4/43 11% 19% 7/28** 41.7% 13/28 44% 56% 8/28 32% 27% 14/25 38.7% 26/41 23% 56% 0/41 7% 12% 22.9%
* einstakl. m. einkenni/einstakl. bólusettir ** 3 með vökva í lið