Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 62
264 LÆKNABLAÐIÐ MARKMIÐ Markmið þeirrar skýrslugerðar, er varð- ar sjúkrastofnanir, er að: 1. Stuðla að skipulegri áætlanagerð og eft- irliti. 2. Nýting mannafla, tækjabúnaðar og stofnana verði sem hagkvæmust frá læknisfræðilegu og rekstrarlegu sjónar- miði. Til þess að því markmiði verði náð er nauðsynlegt að stofna til samræmdrar skráningar, varðveislu og úrvinnslu gagna um biðlista, vistun og afdrif sjúklinga. Kostir þessa fyrirkomulags, ef vel tekst til, eru m.a. eftirfarandi: 1. Nákvæmari og samræmdari upplýsingar fást um biðtíma, legutíma og afdrif sjúklinga. 2. Samræmdar upplýsingar fást um sjúk- dómsgreiningar og aðgerðir. 3. Vettvangur skapast fyrir meiri samræm- ingu á starfi lækna m.a. við greiningu sjúkdóma og meðferð þeirra. 4. Oruggari grundvöllur skapast fyrir á- ætlunargerð varðandi mannafla, tækja- búnað og byggingarþörf en verið hefur. Töflur um meðallegudagafjölda, sjúk- dómsgreiningar og aðgerðir sem unnar hafa verið fram að þessu gefa frekar upplýs- ingar um framleiðni en gæði. En með þessu upplýsingakerfi ætti að vera mögu- legt að fá haldbetri upplýsingar um árang- ur og gæði þjónustunnar. ÚTTAK Skýrslur og listar, sem fyrirhugað er að vinna í Akraneskerfinu má flokka á ýmsa vegu. Almennt má segja að í Akraneskerfinu verður hægt að vinna allar skýrslur og lista, sem gerðar eru nú í gamla kerfinu. Auk þess býður kerfið upp á mjög fjöl- þætta úrvinnslu, sem útilokað er að fram- kvæma í gamla kerfinu. Þessar nýju úrvinnslur, sem verða mögu- legar, eru fyrir læknisfræði gæðaeftirlit stjórnun og vísindalega notkun. Hér getum við flokkað skýrslur, sem verða unnar, í fjóra hópa: 1. Sömu eða hliðstæðar skýrslur og þær, sem gerðar eru í dag í gamla kerfinu. Hér má nefna mánaðarlega nafnalista sjúklinga, nýtingu rúma á deildum og reikninga til sjúkrasamlaga. Árlegar legudagaskýrslur, sjúkdóma- skrár, aldurs- og kynskiptingu og að- gerðaskýrslur. 2. Nýjar skýrslur, sem eru almennar staðl- aðar skýrslur fyrir læknisfræði, gæða- eftirlit, stjórnun og vísindalega notkun. Hér má nefna: Sjúkdómaskrá flokkuð á sjúkrahús og yfirdeildir eftir aldri, búsetu, atvinnu, lengd legu og ástandi við brottför. Legudagafjölda á sjúkdómsgreiningar eftir sjúkrahúsum, búsetu, atvinnu og e.t.v. tekjum. Sjúkdómsgreining og aðgerð eftir lengd legu, afdrifum, ástandi við brott- för, aldri og búsetu. 3. Nýjar skýrslur og listar, sem eru ekki almennar og staðlaðar heldur unnar samkvæmt sérstökum óskum í hvert sinn. Það skal tekið fram að slíkar úr- vinnslur geta orðið staðlaðar að því leyti að kerfið (forritin) fyrir úrvinnsluna er til eftir að einu sinni er búið að biðja um úrvinnslu. Úrvinnslan fer hins vegar einungis fram eftir sérstökum óskum. Þessar úrvinnslur eru fyrir vísindalegar rannsóknir á sviði læknisfræði, gæða- mats, stjórnunar og reksturs sjúkrahúsa. Hér má nefna athuganir á ferli sjúk- linga: samkeyrslur á legum sjúklings á sama sjúkrahúsi og milli sjúkrahúsa. Vinnsla á listum yfir sjúklinga með ákveðna sjúkdómsgreiningu, eina eða fleiri, og hliðstæða úrvinnslu fyrir að- gerðir. Sérstök úrtök eftir stað, sjúkdóms- greiningu, aðgerð, kyn, aldri o.fl. 4. Þar eð afdrif sjúklinga, upplýsingar um heimilislækni og sjúkrasamlag er skráð, er hægt að kanna nánar feril sjúklings eftir útskrift, t.d. fjölda veikindadaga eftir sjúkdómsgreiningu, aðgerð, deild- um, búsetu o.fl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.