Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 71
LÆKNABLAÐIÐ
271
viðkomandi læknis, og geta þó hafa kostað
mikinn tíma og vinnu. Jafnvel kann að vera
herslumunur að niðurstöður rannsókna liggi
fyrir þegar upplýsingar eru gefnar. Með því
að útskýra „til hvaða niðurstaðna rannsókn-
irnar leiddu og hvar niðurstöður þeirra voru
birtar“, má segja að sumum rannsakendum i
læknastétt sé gert hærra undir höfði en fé-
lögum þeirra svo og þeim, sem eingöngu stunda
Jækningar. Ekki er það ætlun ritnefndar eða
stjórnar að leggja dóm á mismunandi störf
lækna.
Varðandi seinna atriðið er „samþjöppunar-
aðferð“, sem boðuð er um birtingu ritverka-
skrár í tilvonandi Læknatali mjög í samræmi
við ný skandinavisk læknatöl, en sum ganga þó
lengra en hér hefur komið til tals. 1 umræð-
um ritnefndar og stjórnar um þennan vanda
kom upp sú hugmynd að gefa út sérstaka
ritverkaskrá sem fylgirit Læknablaðs, og hef-
ur stjórn L.I., með samþykki stjórnar L.R. (en
félögin standa saman að útgáfu Læknablaðs-
ins), leitað eftir þvi við ritstjóra Læknablaðs-
ins, að þeir taki að sér að undirbúa útgáfu
á fylgiriti Læknablaðsins, sem innihéldi skrá
um öll læknisfræðileg ritverk islenskra lækna
með tilheyrandi uppflettiskrám. Áður en þessi
útgáfa verður að veruleika, er þó eðlilegt að
gefa út efnisyfirlit Læknablaðsins, sem bóka-
safnsfræðingur var fenginn til að gera og
bíður útgáfu nær fullunnið.
Undirritaðir geta ekki fallist á þá fullyrð-
ingu bréfritara að „engin ritskrá getur
komið í staðinn fyrir ritskrá Læknatalsins"
og sjá ekki, að hún sé studd rökum. Ritaskrá
með tvöfaldri skráningu (þ. e. eftir bæði höf-
undum og efni) yrði ódýrari útgáfa sem
fylgirit Læknablaðsins, dreifðist þá jafnframt
til allra lækna og yrði að okkar áliti mun
hentugri handbók en Læknatalið. Þar sem bréf-
ritarar vitna til hefðar Læknatals, má geta
þess, að í ritaskrá síðasta Læknatals er iðu-
lega aðeins tilgreint tímarit og árgangur, en
ekkert um efni greinarinnar.
Að lokum skal þess getið, að ritnefnd er
enn fús að taka við ábendingum og rökstudd-
um óskum, eins og hún nefndi í bréfi sínu í
desember sl. Hins vegar er löngu hafin vinna
ritstjóra og ritnefndar við einstaka kafla (ævi-
ágrip) ritsins og þess vegna erfitt að breyta
þem megin línum, sem lagðar voru í upphafi
um vinnuaðferð, enda liðið nokkuð á annað ár,
síðan fyrstu tilmæli voru sent út til lækna.
Fyrir hönd ritnefndar viljum við að lokum
þakka bréfriturum fyrir áhuga þeirra og ágæt
skil á upplýsingum til Læknatals, sem flestir
þeirra hafa þegar skilað.
Þóroddur Jónasson Tómas Á. Jónasson
Við lok aðalfundar L.l. 1979: Þorvaldur V. Guðmundsson, Marker Simonsen fulltrúi fcer-
eyska lœknafélagsins og Tómas Á. Jónasson. Nánar verður sagt frá aöalfundinum síöar.