Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1979, Page 46

Læknablaðið - 01.10.1979, Page 46
250 LÆKNABLAÐIÐ og gekk með bogið hné. Oftast var enga liðbólgu að sjá. Komu þessi köst á nokk- urra vikna eða mánaða fresti. Oftast lengd- ist tíminn milli kastanna og einkenni hurfu að lokum af sjálfu sér, en dæmi er um, að einkenni hafi staðið þannig í allt að 5 ár eftir bólusetningu. Fleiri höfundar hafa lýst þessum sjúkdómsmyndum. Hjá sum- um bólusettum hefur fundist minnkuð skyn- og hreyfitaugaleiðni og hjá einum fannst við liðspeglun (arthroskopiu) of- vöxtur (hypertrofia) á liðslímhúð (syno- via) í hnjálið. Ber höfundum ekki saman, um hvað sé hér um að ræða. Sumir telja að áðurnefnd einkenni séu hvort tveggja „myeloradiculo-neuritis", aðrir langvar- andi liðbólgur í hnjám og einkenni frá höndum séu svonefnd „carpal tunnel syn- drome"30,31 36 40 72 73 74 70 77. Sé athugað sam- band sjúkdómsmyndana og tegunda bólu- efnis kemur í ljós, að algengast er þetta eftir notkun HPV-77 DK12 (nýgengi 2.2/ 1000) en einnig er þess getið eftir notk- un HPV-77 DE5 (nýgengi 0.1/1000) og Cendehill48. Ekki virðist þessu hafa verið lýst enn sem komið er, eftir notkun á RA 27/3. Af hverju þessi munur er á bólu- efnunum er ekki vitað. Hugsanlega skýr- ingu gæti verið að finna í mismunandi vefj- um sem bóluefnisveirurnar eru ræktaðar í (HPV-77 DK12 er ræktað 12 sinnum í hundafóstursvef). Þar eð rauðu hunda veir- an er hjúpveira gæti orsökin fyrir ein- kennunum verið svörun einstaklingsins á þann hluta hjúpveirunnar, sem hún fær frá frumunni við knappskot (budding). 3. Ending mótefna og endursýkingar. Hversu lengi mótefnin haldast í blóði er komin lítil reynd á, þar sem elstu rauðu hunda bólusetningar eru aðeins um 12 ára gamlar. í Bandaríkjunum voru í fyrstu notaðir HPV stofnarnir tveir og Cendehill en RA 27/3 ræktaðist fyrst 1964 og kom ekki á markað þar sem bóluefni fyrr en nokkrum árum síðar. Hillary o. fél.41 hafa fylgt litlum hópi bólusettum með RA 27/3 í 6 ár. Af 21 barni höfðu aðeins 2 fallið fjórfalt og einn e. t. v. risið fjórfalt í mót- efnamagni á þeim tíma. Sem samanburðar- hópur voru notuð neikvæð systkini þess- ara barna í sömu fjölskyldum. Kom í ljós, að rauðir hundar höfðu gengið í þessum fjölskyldum, því neikvæðir höfðu mynd- að mótefni án bólusetningar, og þar af tveir veikst. Þar eð mótefnamagn bólu- settu barnanna hafði ekki hækkað, var dregin sú ályktun að þau hefðu haft vernd- andi mótefni og ekki sýkst sub-kliniskt. Black o. fél.° bólusettu um 150 Indíána í Brasilíu með RA 27/3, og 2 árum eftir bólusetninguna hafði mótefnamagn fallið um helming. Voru þau þá svipuð og hjá Indíánum í sama þorpi sem höfðu sýkst af rauðum hundum 4 og 12 árum áður. Buser o. fél.10 fundu eftir bólusetningu með RA 27/3 um helgingsfall GM gildis mótefna á 3 árum hjá 17 börnum. Grill- ner34 fann að GM gildi hjá bólusettum með RA 27/3 var eftir 2 ár 46 samanborið við GM gildið 52 sem mældist 8 vikum eftir bólusetningu. Stórir hópar hafa verið bólu- settir með RA 27/3 í Svíþjóð og Bretlandi og á að fylgjast með þeim á 5 ára fresti 11 87. Ekki hafa verið birtar niðurstöður af þeim rannsóknum enn. í rannsókn Grill- ner34 voru einnig hópar bólusettir með HPV-77 DE5 og Cendehill. Voru þeirra GM gildi sem hér segir: Cendehill eftir 8 vikur: 32 og 2 ár 33, en HPV-77 DE5 eftir 8 vikur 39 og 2 ár 55, þ. e. hækkun á þessu tveggja ára tímabili. Við nánari athugun höfðu 7 af 45 HPV-77 DE5 bólusettum fengið fjórfalda hækkun mótefna eða meir. í Cendehill bólusetningarhópi höfðu 4 af 52 fjórfalda hækkun eða meira og í RA 27/3 bólusetningarhópi 2 af 46. Þrjár bólu- settar með Cendehill höfðu misst öll mæl- anleg mótefni á 2 árum. Taldi Grillner að hækkunin gæti verið vegna endursýking- ar með villtri rauðu hunda veiru. Gerir slík sýking því erfitt að dæma af GM gildi um varanleika mótefnanna. Farquhar2122 fylgdi börnum, bólusettum með Cende- hill og RA 27/3 í 3 og 4 ár. Kom í ljós að GM gildi féll fyrstu 2 árin (hjá öðrum hópnum úr 45 í 40) en eftir þriðja árið varð hækkun á GM gildi í 69. Ef tekin voru sér þau börn sem höfðu fjórfalda hækkun eða meira, var GM gildi 48 hjá hinum. Sama niðurstaða var í öðrum hóp eftir 4 ár. Ekki hafði orðið vart einkennn rauðu hunda sýkingar hjá börnunum og dró höfundur þær ályktanir að villt rauðu hunda veira hefði hér valdið einkennalaus- um sýkingum hjá nokkrum hinna bólu-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.