Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.10.1979, Qupperneq 52

Læknablaðið - 01.10.1979, Qupperneq 52
256 LÆKNABLAÐIÐ þjóðarinnar, nema með barnaeftirliti á fyrstu æviárunum. Allt öðru máli gegnir um ísland. Hér má telja að sé frekar lítið um fólksflutninga til langtíma til og frá landinu. Við höfum heilbrigðiskerfi sem gerir okkur kleift að ná til hvers einasta ís- lendings fram á lok skólaskyldu ef við vilj- um svo við hafa. Eftir þann aldur tekur við mæðraeftirlit ófrískra kvenna, sem er skipulagt um allt land. Við getum því haft miklu frjálsari hendur um val aldurshópa en stærri þjóðirnar. Niðurstaða. Af framangreindu má draga eftirfarandi niðurstöðu: 1. HI- og N-mótefnamagn virðist mest eftir gjöf RA 27/3 eða HPV-77 DE5 bóluefna en minna eftir gjöf Cendehill bóluefnis. RA 27/3 gefið í nef veldur mót- efnasvörun sem líkist mest eðlilegri sýk- ingu. RA 27/3 gefið undir húð veldur lík- lega kvalitativt sömu mótefnasvörun en í minna magni hvað IgA-mótefni slímhúð- ar snertir. HPV-77 DE5 og Cendehill gefa litla sem enga iota- og slímhúðar IgA-mót- efnasvörun. RA 27/3 virði'st því besti mót- efnavakinn og líkjast mest eðlilegri sýk- ingu. Inngjöf RA 27/3 undir húð er örugg- ari en um nef. 2. Tíðni aukaverkana eftir notkun RA 27/3 er meiri en eftir Cendehill en minni en eftir HPV-77 DE5. Þær standa sem heild skemur en eftir notkun HPV-77 DE5 og ekki hefur orðið vart langvarandi lið- einkenna eftir notkun RA 27/3. 3. Smithætta frá hinum nýbólusettu er hverfandi, hvaða bóluefni sem notað er. 4. Bóluefnisveiran hefur ræktast úr vefj- um frá sýkingarhreiðrum í líkama hinna bólusettu fleiri vikum eftir bólusetningu. Einnig hefur hún ræktast úr fóstursvefj- um eftir fósturlát eða fóstureyðingar og fer hún því yfir fylgju. Þó má ætla að vegna veiklunar sé minni hætta á fóstur- skaða en eftir eðlilega sýkingu. Vegna þessarar hættu sé ekki talið rétt að bólu- setja vanfærar konur og beri að forðast þungun 3 mánuði eftir bólusetningu. 5. Enn er ekki vitað um endingu mót- efnanna. í flestum rannsóknum koma fyr- ir einkennalausar sýkingar sem gera erf- itt fyrir að dæma bólusetningarmótefni. Mótefni falla þó næstu árin eftir bólu- setningu. Hjá sumum einstaklingum falla þau tiltölulega fljótt niður fyrir þau mörk að endursýking geti átt sér stað. Til eru dæmi um sýkingu fósturs við endursýk- ingu móður. Árangur endurbólusetningar getur verið vafasamur. Gömul lág N-mót- efni geta líklega hindrað eða dregið úr þeirri mótefnahækkun sem sóst er eftir. Ekki er heldur hægt að vita hvenær mót- efni einstaklingsins eru fallin svo að end- urbólusetning komi að gagni. 6. Áhrif á faraldursfræði rauðra hunda. a) í milljónaþjóðfélögum eins og t. d. Bandaríkjunum er nægilegt að 15% þjóð- félagsþegna sé næmt til að halda veirunni gangandi. Hugsanlegt er að endursýking villtrar veiru sé nauðsynleg til að halda við mótefnum einstaklingsins. Þjóni það því e. t. v. tilgangi að viðhalda villtum rauðum hundum. b) Á íslandi virðist rauðu hunda veir- an hverfa alveg úr þjóðfélaginu milli far- aldra. Mótefni einstaklinga geti því fallið og þeim mun meira sem lengra líði milli faraldra. Ef komið er í veg fyrir faraldra meðal barna gætu bólusetningarmótefni þessara einstaklinga fallið niður úr öllu valdi. Eftir 10—20 ár hefði ef til vill mynd- ast hópur næmra kvenna á barneigna- skeiði, sem faraldur gæti náð sér niðri í. Með þetta í huga sé því réttara hér á landi að gefa öllum börnum tækifæri til að mynda eðlileg mótefni fram til 12 ára aldurs, bólusetja þá neikvæðar 12 ára stúlkur og gefa þeim þá vörn sem hægt er með besta fáanlega bóluefni hverju sinni. HEIMILDIR 1. Al-Nakib W., Best J.M., Banatvala J.E. Rubella specific serum and nasopharyn- geal immunoglobulin responses following naturally acquired and vaccine-induced infection, prolonged persistence, of virus specific IgA. Lancet jan. 25, 182—187, 1975. 2. Balfour H.H., Balfour C.L., Eddmann C.K. Rierson P.A.: Evaluation of Wistar Ra 27/3 rubella virus vaccine in children. Am. J. Dis. Child 130, 1089—1091, 1976. 3. Beasley R.P., Datels R„ Kim K.S.W., Gale J.L., Tunlung Lin, Graystone J.T.: Pre- vention of rubella during an epidemic in Taiwan. Am. J. Dis. Child. 118, 301—306, 1969. 4. Behan P.O.: Diffuse myelitis associated
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.