Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.10.1979, Qupperneq 67

Læknablaðið - 01.10.1979, Qupperneq 67
LÆKNABLAÐIÐ 267 NÝTT LÆKNATAL BR£F TIL LÆKNABLAÐSINS Islenzkum læknum var fyrir nokkru sendur spurningalisti vegna endurútgáfu ísl. lækna- tals (Læknar á íslandi, 3ja útgáfa). 1 spurn- ingalistanum voru læknar beðnir að gefa upp- lýsingar um sjálfa sig til ársloka 1977 til birt- ingar í Læknatalinu. I desember 1978 var þeim, sem ekki höfðu svarað spurningalistanum, sent eftirrekstrarbréf, og þeir beðnir að svara, en jafnframt var þeim bent á heimild til að bera fram rökstuddar óskir og ábendingar um útgáfu ritsins. Okkur finnst nú rétt að gera það, og beinast athugasemdir okkar að nokkr- um atriðum, sem ritnefnd Læknatalsins ætlar að leggja takmarkaða áherzlu á í upplýsinga- öfiun sinni. Áðurnefndum spurningalista fylgdi kynnis- bréf um fyrri útgáfur læknatals og tildrög væntanlegrar útgáfu. Þar telur ritnefndin til- gang læknatalsins vera, að í læknatalinu komi fram......samstæðar og sem mest tæmandi upplýsingar um íslenzka lækna þ. e. tæm- andi innan þess ramma, sem stjórn L.l. telur æskilegan og mögulegan . . .“, en Læknafélag Islands er útgefandi ritsins. Þetta er útfært nánar í kynnisbréfinu á eftirfarndi hátt: ..Áhersla skal lögð á, að hér er fyrst og fremst um „læknatai“ að ræða, þ. e. æviágrip manna, sem stunda eða stundað hafa lækningar. Ævi- ágripið verður þvi um iæknisferil mannsins og störf tengd honum fyrst og fremst, enda er læknismenntun og -störf forsenda bókarinnar. Á bls. 5 í spurningalistanum er svo ráð fyrir gert, að iæknar geti gefið upplýsingar um ým- is þau atriði í lífi sínu, sem þeim eru hugstæð og finnst ástæða til að nefna. Æskilegt er, að læknar gefi þessar upplýs- ingar, en þeim sem ganga frá handritinu verði gefið úrskurðarvald um það hvað birta skuli. Þó að gert sé ráð fyrir. að fylgt verði fyrra ritinu sem mest, er vitað nú þegar, að þar muni verða nokkur frávik. Tvennt skal nefnt: 1) Ferðalög á ráðstefnur og læknaþing eru orð:n svo daglegur viðburður. að tæpast tek- ur því að tíunda allar slíkar ferðir nú, þó að þær hafi talist til tíðinda og undantekninga fyrir 10—20 árum. 2) Ritstörf. Algerlega tæmandi ritskrá, allt niður í einstakar smágreinar, oft unnar í sam- vinnu_ við fleiri lækna, á tæpast erindi í svona bók. Á hinn bóginn eru vissar upDlýsingar um lækni fólgnar í frásögnum af þvi að hann hef- ur stundað framhaldsnám/viðhaldsnám með því að sækia fundi og námskeið, eða hann hefur stundað ritsmíðar, sem eiga sé bakhjarl í vinnu eða rannsóknum og sýna að hvaða grein- um áhugi hans hefur beinst. Þess skal getið, að þessi samþjöppunaraðferð er í samræmi við nýleg læknatöl á öðrum Norðurlöndum". Þessi „samþjöppunaraðferð“ hefur svo orðið ritnefndinni enn ljósari i eftirrekstrarbréfinu í desember 1978, því það segir: „Það verður æ ijósara, að skera verður nið- ur og þjappa saman ýmsum upplýsingum, enda hefur ritnefnd áskilið sér rétt til þess. Hér er einkum um að ræða náms- og ráðstefnuferðir auk ritsmíðatals. Auðséð er, að ferðir á þing og námskeið eru mörgum árlegir viðburðir, jafnvel fleiri en ein og geta nú orðið alls ekki talist tíðindi, nema í undantekningatilfellum. Ritnefnd mun því yfirleitt hafa þann hátt á að geta aðeins um tiðni slíkra ferða og hvaða sérgrein þær þjóna. I vafatiifellum mun rit- nefnd reyna að finna heppilegustu iausn og gjarnan hafa samráð við viðkomandi. Sama er aö segja um ritsmíðalista. Það mcetti cera óstöðugan að tíunda allar fræðilegar greinar með heiti og tilvísun í, hvar þær er að finna. Til að forðast mismunun manna telur ritnefnd hann kost vænstan að geta á þennan hátt að- eins sérfræði- og doktorsritgerða auk meiri háttar ritverka. Annars verður aðeins getið fjölda ritsmíða, á hvaða sviði þær eru og e. t. v. hvar þær helst hafa birst. Verður hér eitt yfir alla að ganga og mun niðurskurður ná jafnt til nýrra sem eldri upplýsinga." Hafandi kynnt sér þannig almennt orðaðan tilgang ritverksins og hvernig ritnefndin hyggst ná tilgangi sínum, er nauðsynlegt að athuga spurningalistann til þess að s.iá, hvers konar upplýsingar ritnefndin leggur mesta áherzlu á að afla um íslenzka lækna. I spurningalist- anum finnst þetta: Birta skai fullt nafn, tvínefni eða fleirnefni og einnig upphafsstaf(i), sem læknirinn notar, fæðingardag hans og ár. dánardag og ár, dán- arstað og fæðingarstað, fullt nafn föður, heim- ili hans við fæðingu læknis. fæðingardag og fæðingarár föður og dánardag og dánarár. Birta skal fullt nafn móður og stöðu, ef hún er önnur en húsmóðir, og geta skal þess. hvort foreldrar iæknis voru giftir. Birta skal fæðing- ardag móður og fæðingarár. dánardag og dán- arár, og fullt nafn, stöðu og heimili móðurföð- ur. Geta skal stúdentsprófs. við hvaða skóla, deild (ef skóli er deildarskiotur). hvenær tek- ið. hvaða einkunn; kandidatsnrófs í læknis- fræði, hvar tekið, hvenær og með hvaða ein- kunn, læknaprófa auk kandidatsprófs. hvaða prófa. hvar tekin. hvenær; ótakmarkaðs iækn- ingaleyfis á Islandí og í öðrum löndum, hveri- um og hvenær, sérfræðiviðurkenningar á ís- landi og í öðrum löndum, sérfræðiritgerðar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.