Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Blaðsíða 4
föstudagur 2. mars 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Nú er gaman að lifa Einhverjar niðurrifsraddir munu finna að því að nammið lækki mest, en það er nú þannig að sumir verða aldrei glaðir. Ekki einu sinni þeg- ar nammið hefur lækkað meira en allt annað. Aðrir þeir sem kunna að gleðjast, gleðjast og minnast þess sem Páll Vilhjálmsson sagði um árið; lakkrís lækki, lýsi hækki. Gleymum því að fjandans lýsið lækkar líka, þetta snýst hvort eð er ekkert um lýsi. Það er nammið sem er aðalmálið. Nú er bara að bíða eftir að fram- leiddar verði stærri skálar, nammi- skálar. Eins er upplagt að bæta við nammidögum, hafa þá tvo jafnvel þrjá, frá fösturdegi til sunnudags. Þetta er lífið, hið sanna líf. Ráðherr- ar sem leggja allt undir og lækka nammið og gosið svo um munar, þeir verða kosnir aftur. Jafnvel Fram- sóknarráðherrar. Þannig er þetta allt saman. Ekki er annað hægt en að vor- kenna fýlupúkunum. Ekkert er hægt að gera til að gleðja suma, ekki einu sinni með því að lækka nammið. Til að freista þess að gera fúla glaða hef- ur verð á öðru, ekki eins mikilvægu, líka lækkað. Kannski dugar það til að hrista ólundina af þeim leiðinleg- ustu. Hver veit. Umfram allt skal þess gætt að nú er lag til að borða meira nammi. Meðan þess er beðið að gerðar verði verðugar nammiskálar mun margur notast við vaskaföt eða bala. Eitt er víst að þjóð sem býr á hjara verald- ar bjargar sér, bjargar sér jafnvel þeg- ar nammi er annars vegar, og ekki síst þá. Þessi mikla ákvörðun mun þjappa þjóðinni saman, gera hana að einni einingu, einingu sem ekkert fær rofið, ekki einu sinni þó úrtölu- raddir heyrist héðan og þaðan. Fáum okkur nammi, það kostar lítið. dagfari Nýr slökkvibíll á Egilsstöðum Nýr slökkvibíll Flugstoða ohf og Brunavarna á Héraði var tekinn í notkun á Egils- staðarflugvelli í gær. Bíllinn verður staðsettur á flugvellin- um en mun sinna almennum útköllum á Héraði. Bílinn mun vera í viðbragðsstöðu vegna flugumferðar á flugvellinum og uppfyllir hann alla staðla Alþjóðaflugmálastofnunarinn- ar og almennra slökkvistarfa. Náttúruverndar- sinnar gagnrýna RÚV Saving Iceland hefur sent frá sér harðorða fréttatilkynningu vegna fréttaflutnings Ríkisút- varpsins þann 21. febrúar sl., af skemmdarverkum ELF, Earth Liberation Front, í Hafnarfirði í janúar. Skemmdarverkin voru unnin á þremur vinnuvélum á byggingarsvæði þar sem fram- kvæmdir við skólpdælustöð standa yfir, en munu hafa verið ætluð álveri Alcan í Straumsvík. Saving Iceland gagnrýnir RÚV harðlega fyrir að segja ELF bera ábyrgð á heimasíðunni Saving- Iceland.org. Auk þess sem Saving Iceland segist ekki vita betur en að ELF hafi fram að þessu haldið sig einkum við Bandaríkin. Tekin á 136 km hraða Á miðvikudagskvöldið stöðv- aði lögreglan í Reykjavík 17 ára gamla stúlku fyrir ofsaakstur. Hún mældist á 136 km hraða. Stúlkan fékk bílprófið síðasta haust. Nú á stúlkan hins vegar von á því að missa ökuleyfið í einn mánuð auk þess að fá 75 þúsund krónur í sekt. Þetta er í annað sinn á tveimur vikum sem 17 ára stúlka er tekinn fyrir ofsa- akstur í Ártúnsbrekkunni. Sú fyrr mældist á 130 km hraða. Símhringingum og tölvupóstum rigndi yfir Neytendastofu og Neytendasamtökin í gær þegar fólk benti á fjölda fyrirtækja sem ekki höfðu lækkað vöruverð. Stór sem smá fyr- irtæki lækkuðu ekki verð sem skildi en einkum varð þess vart hjá söluturnum og minni verslunum. Brynjólfur Þ. Guðmundsson blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is Talsvert var um að fyrirtæki lækk- uðu ekki vöruverð sitt í gær þó virðis- aukaskattur lækkaði úr 14,5 eða 14.5 prósentum í sjö prósent. Neytendur voru vel á verði og létu vita af þeim fyrirtækjum sem lækkuðu verðið ekki. „Við erum búin að vera í síman- um í allan dag,“ sagði Anna Birna Halldórsdóttir, hjá Neytendastofu, síðdegis í gær. Þá höfðu neytendur verið duglegir við að tilkynna um fyr- irtæki sem ekki höfðu lækkað vöru- verð þrátt fyrir lækkun virðisauka- skatts. Þetta gátu þeir gert hvort tveggja með því að hringja í Neyt- endastofu og senda inn tilkynningar á vef stofunnar. Til marks um hversu mikið var að gera birtist tilkynning á tölvuskjá Önnu Birnu í miðju símtali. Þá tilkynnti árvakur neytandi um að pylsuverð hefði ekki lækkað á einum stað. „Fólk er mikið að benda á staði þar sem verð hefur ekki lækkað, allt frá mötuneytum til minni versl- ana og söluturna,“ segir Anna Birna. Starfsmenn Neytendastofu áttu í fullu fangi með að taka við tilkynn- ingum í gær. Í framhaldinu taka þeir til við að hafa samband við fyrirtæk- in og leita skýringa á því hvers vegna vöruverðið hefur ekki lækkað. skýringa óskað Álagið var líka mikið á starfs- mönnum Neytendasamtakanna. „Það er mikið búið að hringja,“ seg- ir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. „Einnig höf- um við fengið mjög mikið af tölvu- póstum frá almenningi, frá neytend- um. Það segir okkur að neytendur eru mjög vakandi þessa dagana og neytendur ætlast til að þessar lækk- anir skili sér á réttan stað, í vasa neyt- enda.“ Jóhannes segir að allar kvartanir og ábendingar sem Neytendasam- tökin fái verði send á viðkomandi fyr- irtæki og óskað eftir skýringum. Fáist ekki fullnægjandi skýringar að mati Neytendasamtakanna áskilja þau sér fullan rétt til að aðhafast frekar. „Í sumum tilvikum hefur eitthvað klikkað í kerfinu hjá aðilum. Í fram- haldi af okkar ábendingum eru hlut- ir lagaðir,“ segir Jóhannes þannig að ekki er alltaf um það að ræða að kaupmenn ætli að stinga skattalækk- uninni í eigin vasa. Mistök geta líka valdið því að verðið lækkaði ekki strax. Viðbrögðin í gær færa heim sann- inn um að neytendur eru meðvitað- ir um rétt sinn segir Jóhannes. „Ég er búinn að vera lengi í þessum bransa, hef starfað lengi við neytendamál, og held því fram að neytendur hafi aldrei verið jafn vakandi og eins virk- ir og þeir eru í dag.“ Gamla og nýja verðið Sums staðar mátti sjá tvö verð á vörum í verslunum. Þá var skráð gamla verðið sem gilti fyrir skatta- lækkan og nýja, lægra verðið sem gildir eftir hækkun. Þannig gátu neytendur séð hversu mikið einstak- ar vörur lækkuðu í verði. Sums stað- ar var afgreiðslufólk fast í verðum og þurfti að leiðrétta sjálft sig þegar það nefndi dagsgömul verð. Átti það ekki síst við í söluturnum og bakaríum þar sem afgreiðslufólk slær inn upp- hæðir á afgreiðslukassa frekar en að láta skynjara nema strikamerkingar. „Fólk er mikið að benda á staði þar sem verð hefur ekki lækkað, allt frá mötuneytum til minni verslana og sölu- turna.“ Margir héldu eftir skattalækkuninni Verðunum breytt Kaupmennirnir í Kjötborg stóðu vaktina og breyttu verðum þannig að skatta- lækkanirnar skiluðu sér til neytenda. Gamla og nýja verðið margar vörur í Nóatúni voru merktar með bæði gamla og nýja verðinu. Bubbi vann Hæstiréttur dæmdi í gær fyr- irsögnina „Bubbi fallinn“ dauða og ómerka. Þessi fyrirsögn birtist í tölublaði Hér og nú sem kom út í byrjun sumars 2005, með mynd af söngvaranum með sígarettu í hönd. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að sömu niðurstöðu í maí á síðasta ári og gerði Garðari Erni Úlfarssyni, fyrrverandi ritstjóra blaðsins, að greiða Bubba Mor- tens 700 þúsund krónur í miska- bætur og málskostnað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.