Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Side 15
Erna Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar: Landbúnaðarkerfi „Mér þykir trúlegast að það verði landbúnaðarkerfið, atvinnumál og umhverfismál. Það er svo augljóst að fólki er mjög tíðrætt um matar- verð og að þarna eigi eftir að taka hitt vandamálið í gegn. Það er búið að lækka virðisaukaskattinn en síðan þarf að taka fyrir kerfið sem slíkt. Svo eru atvinnumálin, fólk er orðið góðu vant, það hefur verið gott atvinnuástand í langan tíma en ég held að umræðan hljóti að snúast um atvinnumálin líka. Svo er almenn og aukin umræða í þjóð- félaginu um umhverfismál. Það eru virkjanamálin sem brenna á fólki en eins líka umhverfismál og umhverf- isvernd almennt.“ Þóra Helgadóttir, hagfræðingur: Stefna efnahags- mála mikilvæg „Ég tel mjög mikilvæg að vita hvert flokkarnir stefna í efnahagsmálum, hvort þeir hafi einhverjar stórtækar breytingar í huga. Mér finnst mjög mikilvægt að við höldum sam- keppnishæfni okkar í skattamál- um fyrirtækja og þar þurfum við að laga okkur betur að því sem hefur verið að gerast í Evrópu. Það þarf að einfalda skattkerfið og gera það skilvirkara. Það þarf einnig meiri samhæfingu á milli fjármála- og peningamálastefnu það er að segja, ríkisvaldið og seðlabankinn þurfa að vinna betur saman. Málefni innflytjenda eru líka mjög mikilvæg. Þar þarf að taka skyn- samlegar ákvarðanir og hafa þarf í huga að við erum að hagnast mikið á innflytjendum. Því þurfum við að taka vel á móti þeim, taka vel á mál- efnum strax í upphafi til að koma í veg fyrir möguleg samfélagsleg vandamál sem til dæmis hafa látið á sér kræla á Norðurlöndunum. Ég horfi líka á stefnu stjórnvalda í álversmálum. Þar þarf að stíga varlega til jarðar því vafasamt er að ana út í miklar álversframkvæmdir í ljósi uppgangs sem verður í kring- um þær. Það þarf að ná tökum á þenslunni.“ DV Fréttir föstudagur 2. mars 2007 15 Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður: Framfarirnar þurfa að halda áfram „Það sem skiptir öllu máli er ein- faldlega að halda áfram þeim gíf- urlegu framförum sem orðið hafa á íslensku samfélagi í upphafi 21. aldarinnar og í lok þeirrar síðustu, en það er mesta framfaraskeið íslensku þjóðarinnar. Það er hollt fyrir kjósendur að huga að því hvar við stæðum ef Samfylkingin eða vinstri grænir hefðu haldið um stjórnartaumana á þessum tíma, þá værum við nánast á steinöld. Lykillinn að öllum þessum breyt- ingum er þátttaka í Evrópska efnahagssvæðinu og einkavæðing ríkisfyrirtækja og allar þær huga- farsbreytingar sem orðið hafa við Evrópuvæðinguna. Mikilvægasta verkefni er ekki bara að viðhalda heldur að halda áfram og ganga miklu lengra. Það er algjörlega kýrskýrt að ef kjósendur velja Frjálslynda lúseraflokkinn, um- ræðustjórnmálaflokk Samfylking- arinnar eða talibanaflokk vinstri grænna, þá mun þessi góða þróun á Íslandi taka u-beygju. Þannig að það er lífsspursmál að Sjálfstæðis- flokkurinn haldi áfram um stjórn- artaumana.“ Amal Tamimi, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna: Málefni innflytjenda „Ég hlýt auðvitað að nefna mál- efni innflytjenda fyrst. Það mun hafa áhrif á umræðuna nú þegar innflytjendur eru komnir inn á framboðslistana. Það fólk er líka vonandi komið þarna inn á listana til þess að láta til sín taka, því ef það er bara þarna inni til skrauts, þá gerist ekki mikið. Önnur velferðarmál verða einnig mikið í umræðunni, sérstaklega málefni aldraðra og fatlaðra. Við þurfum að hugsa betur um fólkið sem þarf á okkar aðstoð að halda. Það er til dæmis ómögulegt að aldrað fólk sem er búið að vinna allt sitt líf fyrir Ísland geti ekki fengið íbúðir þegar það þarf á því að halda. Málefni fatlaðra verða líka að vera eitt af kosningamálun- um. Það gengur ekki að foreldrar fatlaðra barna geti ekki sinnt vinnu sinni vegna þess að það það eru ekki til úrræði fyrir börnin.“ um Hvað verður kosið?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.