Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Side 38
Árni Heimir Ing- ólfsson er yngsti dósentinn við Lista- háskóla Íslands. Hann er líka eini Íslendingurinn sem lokið hefur doktors- námi í tónlistar- fræði frá hinum virta Harvard- háskóla. Hann er flottur í kjólfötun- um þar sem hann stjórnar kór; hann er góður kennari en innra með honum leynist diskófíkill sem missir sig á dansgólfinu ef svo ber undir. föstudagur 2. mars 200738 Helgarblað DV Þ ótt hann búi nánast beint á móti vídeó- leigunni þar sem auglýst er stórum stöfum „Stærsta DVD safn lands- ins!“ fer hann nánast aldrei þangað inn. Þegar Árni Heimir Ingólfsson sest nið- ur til að horfa á DVD-myndir eru það yfirleitt langar myndir um píanóleik, kórsöng eða óperur. „Við erum svo miklir nördar, vinirn- ir!“ svarar hann skellihlæjandi fyrstu spurningunni um hvort hann nýti sér návistina við vídeóleiguna. Hann tek- ur á móti mér á listrænu og fallegu heimili sínu í Laugarneshverfinu á sólríkum vetrarmorgni. Hann kenn- ir við Listaháskóla Íslands og segist aldrei fá leið á því að miðla áhuga sín- um á tónlist til nemenda sinna. Listræn systkini Árni Heimir er aðeins 33 ára að aldri, en lauk doktorsnámi í tónlist- arfræðum fyrir fimm árum. Það hefði verið óskaplega skemmtilegt að geta sagt í þessu viðtali að Árni Heimir hafi vitað hvað hann vildi verða frá því hann var lítill strákur en svo er ekki. „Nei, blessuð vertu, ég vissi ekkert hvað ég vildi læra,“ segir hann þeg- ar hann hefur borið fram kamillute, enda segist hann aldrei drekka kaffi. „Lögfræði, bókmenntafræði, sálfræði, guðfræði... Þetta og margt fleira kom til greina á fyrstu árum mínum við Menntaskólann í Hamrahlíð. Það var hálfsystir mín, Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri, sem vísaði mér veginn.“ Árni Heimir er sonur Sigrúnar Árnadóttur og Ingólfs Guðbrandsson- ar söngstjóra. Mörgum finnst liggja í hlutarins eðli að áhugann á tónlist hafi hann erft frá föður sínum. „Reyndar ekki, þótt máltækið segi að fjórðungi bregði til fósturs,“ seg- ir hann. „Það var mamma sem byrj- aði að fara með mig á tónleika og þar fékk ég áhugann. Mamma ber ábyrgð- ina á því hver ég er í dag. Þótt hún sé sjálf ekki tónlistarmanneskja er mik- ið af tónlistarfólki í hennar ætt. Fyrstu tónleikarnir sem ég sótti voru haldn- ir í Austurbæjarbíói – en það bíó var í eigu móðurafa míns Árna Kristjáns- sonar – og ég varð alveg hugfanginn. Þar lék undrabarnið Dimitri Sgouros á píanó.“ Árni Heimir segir mér af afa sínum í Austurbæjarbíói þar sem ég, eins og svo margir, hafði haldið að móðurafi hans væri Árni Kristjánsson, píanó- leikari. „Elín Sigríður systir mín er fimm árum yngri en ég, og þótt hún sé mjög músíkölsk er hún meira með leik- listina í blóðinu. Hún hefur unnið á Broadway sem pródúsent í nokkur ár.“ Broadway í New York eða Broad- way í Ármúla? „Broadway í Ameríku!“ svarar hann og hlær glaðlega. „Hún lauk masters- Listrænn ljúflingur Árni Heimir á einstak- lega fallegt og listrænt heimili. Hann setur innri frið í fyrsta sæti... Fylgir og eltir draumana sannfæringunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.