Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Blaðsíða 42
föstudagur 2. mars 200742 Helgarblað DV
Hvað er
leiðinlegasta
starf sem þú Hefur unnið?
Flestir hafa einhvern tíma á lífsleiðinni þurft að sætta sig við að vinna störf sem voru þeim ekki að skapi.
Oft eru það fyrstu störfin sem viðmælendur DV voru ekki hrifnir af og virðist unglingavinnan ekki vekja upp góðar
minningar hjá fólki. Viðmælendur DV voru þó á einu máli um að þeir hefðu fundið sitt rétta starf á endanum.
margrét Lára viðarsdóttir,
knattspyrnukona
„Leiðinlegasta vinnan sem ég hef verið í var vörutalning í
skipalyftunni í Vestmannaeyjum. Þar var ég að telja skrúfur,
bolta og annað líkt.
Ég var í þessu þegar ég var svona 16 til 18 ára en þetta var
auðvitað bara þegar það var vörutalning. annars finnst mér
bara yfirhöfuð gaman að vinna þannig að ég man ekki eftir
fleiri störfum.“
LiLLý vaLgerður pétursdóttir,
fréttakona
„Leiðinlegasta vinna sem ég hef unnið, er þegar ég var 18 ára
og vann í spilatækjasal í Noregi við að skipta peningum. svo
vann ég einu sinni á bar og fannst það sérstakt.“
Bóas HaLLgrímsson,
tónListarmaður
„Ég hef yfirleitt verið í vinnu sem mér hefur líkað vel í. Ég er
búinn að vera í sömu vinnunni í mörg ár og ef mér hefði líkað
illa, þá hefði ég bara hætt. reyndar líkaði mér ekki vel í
unglingavinnunni, ég átti við viðhorfsvandamál að stríða og
kom mér viljandi upp á móti öllum. Það kom oft til tals að reka
mig, en það var foreldrum mínum að þakka að svo varð ekki.
Nú vinn ég hjá Ítr og miðla reynslu minni til unglinga með því
að láta þá slást þar til þeir þreytast.“
eyjóLfur kristjánsson,
tónListarmaður
„Ég er búinn að vera tónlistarmaður í 25 ár og þar áður var ég
skíðakennari, þannig að mitt líf er ótrúlegt. unglingavinnan
þegar ég var 13 ára var reyndar ekkert spennandi. Ég var
látinn moka skarna í beð sem er mjög illa lyktandi. Ég lét þó
vel að stjórn, enda var þetta bara partur af því að alast upp.
Nokkurn veginn síðan þá hafa hæfileikar mínir leyft mér að
velja mér vinnu og ég er rosalega ánægður með það.“
HeLena óLafsdóttir,
knattspyrnuþjáLfari og kennari
„Það var þegar ég starfaði í fisknum á mínum yngri árum úti á
granda og þurfti að skera úr. reyndar slapp ég stundum í
önnur verk en þetta var það leiðinlegasta.“
þorkeLL máni pétursson, umBoðs-
maður, útvarpsmaður og knatt-
spyrnuþjáLfari
„Ég vann einu sinni í viku í deres í Kringlunni. Það var
hræðilegt. Kjánalegasta sem ég hef upplifað á ævinni.
Yfirmaðurinn var fínn en allt annað var kjánalegt og fólkið var
skrítið. Ég átti bara engan veginn heima þarna, en get sagt um
leið að ég hafi aldrei komist eins nálægt því að vera hnakki og
þessa einu viku sem ég vann í deres.
svo að öðru leyti má segja að ömurlegasta vinnan hafi verið
sjónvarpsþátturinn Jing Jang. Ég vil biðja þá sem sáu þáttinn
afsökunar.“