Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2007, Qupperneq 15
DV Sport þriðjudagur 6. mars 2007 15
Sport
sport@dv.is
Grindavík vann Suðurnesjaslaginn
Bjarni Þór: Aftur til Everton
Patrekur Jóhannesson, hinn reyndi hand-
boltamaður úr Stjörnunni, þurfti að hætta leik í
viðureign Garðabæjarliðsins gegn Fram á laugar-
dag. „Ég var í vörninni þegar Sigfús, miðjumað-
urinn þeirra, tók yfirhanda-gabbhreyfingu og rak
olnbogann í kinnbeinið á mér og það opnaðist
skurður,“ sagði Patrekur sem kom ekki meira við
sögu í leiknum eftir þetta atvik. Stjarnan var með
forystuna þegar atvikið gerðist á sautjándu mín-
útu en á endanum voru það gestirnir sem hrós-
uðu sigri.
„Maður hefði viljað klára leikinn og það var
svekkjandi að ná ekki að spila meira eftir þetta atvik.
Seinni hálfleikur var mjög dapur og ekki skemmti-
legt að horfa upp á liðið spila svona,“ sagði Patrekur
en betur fór en á horfðist í byrjun. „Sjúkraþjálfarinn
okkar og Konráð Olavs náðu að líma þetta saman
en ég fór samt upp á sjúkrahús eftir leikinn og lét
kíkja á þetta. Þar kom í ljós að þetta var nú ekkert
alvarlegt og þurfti ekki að sauma.“
Patrekur er sannkallaður lykilmaður hjá
Stjörnunni en hann hefur skorað yfir fimm mörk
í leik að meðaltali fyrir liðið í vetur. Hann æfði
ekki með Stjörnunni í gær en mun að öllum lík-
indum mæta á æfingu liðsins í kvöld. Framund-
an er annar mikilvægur leikur gegn Fram næsta
laugardag, sjálfur bikarúrslitaleikurinn í Laugar-
dalshöllinni.
„Við mætum dýrvitlausir til leiks og vitum að
í þeim leik þurfum við að spila vel í sextíu mín-
útur og jafnvel lengur ef við ætlum að landa bik-
arnum. Menn vilja gera betur en á laugardag-
inn,“sagði Patrekur Jóhannesson. elvargeir@dv.is
Patrekur Jóhannesson verður til í slaginn fyrir bikarúrslitin:
Ekki gaman að horfa upp á svona spilamEnnsku
Allt um leiki kvöldsins í meistArAdeildinni á bls 16 og 17.
Ætla að sÆkja
liverpool mætir barcelona í síðari leik liðanna í meistara-
deild evrópu. liverpool vann fyrri leikinn 2-1 og eru því í
vænlegri stöðu. eiður smári var í góðu skapi á John lennon
flugvellinum þegar barcelona kom til englands í gærkvöldi.
Frank rijkaard þjálfari lofar sóknarbolta í kvöld.
Allt um leiki næturinnar í NBA
NBA