Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1984, Page 21

Læknablaðið - 15.08.1984, Page 21
LÆKNABLADID 189 vegna æðabilana, voru 1972 dánarorsök 452 af 100.000 íbúa, eða 2/3 hluta hinna látnu. Þó að innan þeirra dánarorsaka prestaskýrslnanna, sem að einhverju leyti gætu flokkast undir ofangreinda prjá flokka, séu aðeins fáir, gæti það sem á skortir fjölda þeirra auðveldlega leynst meðal óþekktra dánarmeina og elli- hrumleika (sjá töflu II), svo að þessvegna mættu þessir sjúkdómaflokkar hafa verið álíka tíð dánarorsök þá og nú, sé miðað jafnframt við aldursdreifingu. Af þeim dánarorsökum prestaskýrslnanna er hér koma til greina, er ástæða til að geta nánar hinna mörgu bráð- dauðu fyrr á tímum. Aðeins lítill hluti þeirra hefur orðið bráðkvaddur af sömu orsökum og menn verða það í dag, langflestir urðu það af vaneldi, eins og gerð hefur verið grein fyrir í öðru sambandi (3, 384-393). Það má ætla, að þau krabbamein, sem talin eru dánarorsakir 1827-36 og 1803 hafi yfirleitt verið auðgreind, sýnileg og vel áþreifanleg, þ.e. staðsett í vör, munnholi, húð og brjósti. Árið 1972 dóu 17,7 af 100.000 íbúa úr krabba, er þannig var staðsettur, og eru það ekki öllu fleiri en létust 1803 úr átumeini. Þetta veitir þó mjög ófullkomnar upplýs- ingar um tíðni þessara krabbameina þá og nú vegna þess, að á fyrra tímabilinu má gera ráð fyrir, að allir, sem fengu sjúkdóminn hafi látist úr honum, en því fer fjarri, að það eigi við 1972. Greining þeirra sjúkdóma, sem nú eru tíðustu dánarmein, byggist að verulegu leyti á tækni, sem ekki var til að dreifa fyrir miðja 19. öld, og gera þessvegna allan náinn samanburð á þeim milli þessara tíma næsta vonlausan. RIT, SEM VITNAÐ ER TIL 1) Schleisner, PA. Island undersogt fra et lægevi- denskabeligt Synspunkt. Kobenhavn, 1849. 2) Minnisverð tíðindi frá miðsumri 1802 til nýárs 1804, skrásett af Finni Magnússyni, III. bd., 2. deild, Leirárgörðum 1808. 3) Steffensen, Jón. Menning og meinsemdir, Reykjavík, Sögufélagið 1975. 4) Finnsson, Hannes. Um mannfækkun af hallær- um á íslandi. Rit þ. kgl. ísl. lærdómslistafélags XIV, 30-226, Kaupmannahöfn 1796. 5) Jónassen, Jónas. Ekinokoksygdommen, belyst ved islandske Lægers Erfaring. Kobenhavn 1882. 6) Magnússon, Guðmundur: Yfirlit yfir sögu sulla- veikinnar á íslandi. Fylgir. Árb. Háskóla ís- lands 1913, Reykjavík, 1913. 7) Jónsson, Vilmundur: Lækningar og saga. Tíu ritgerðir, Reykjavík, Menningarsjóður 1969, 9- 54. 8) Pálsson, Sveinn. Tilraun at upptelja sjúkdóma pá er at bana verða og orðið geta fólki á íslandi. Rit p. kgl. ísl. lærdómlistafélags XV., 1-150, (Kh. 1802). 9) Hoffmann, Friedrich: Fundamenta medicinae, translated and introduced by Lester S. King, London, Macdonald, 1971. 10) Pétursson, Jón. Den saa kaldede Islandske Skiorbug, Soroe 1769. 11) Pálsson, Sveinn. Register yfir íslenzk sjúkdóma nöfn. Rit þ. kgl. ísl. lærdómslistafélags X., 1-60. Kaupmannahöfn 1790. 12) Finsen, Jón. Iagttagelser angaaende Sygdoms- forholdene i Island, Kobenhavn 1874. 13) Dungal, Niels. Eradication of Hydatid Disease in Iceland. New Zealand Med Journal 1957; 56: 212-22. 14) Magnússon, Sigurður. Saga berklaveikinnar á fslandi. Fylgirit skýrslu um heilsuhælið á Víf- ilsstöðum 1922, Reykjavík 1923. 15) Sigurðsson, Sigurður. Tuberculosis in Iceland. Epidemiological studies. Public Health Service Publication No. 21, Washington 1950. 16) Sigurðsson, Sigurður. Tuberculosis morbidity and mortality in Iceland. Bull World Health Org 1952; 7: 153-69. 17) Sigurðsson, Sigurður. Um berklaveiki á fslandi, Læknablaðið 1976; 62: 3-50. 18) Bjarnhéðinsson, Sæmundur. Fra Spedalskheds- hospitalet ved Reykjavik. Kliniske Notitser om Spedalskheden paa Island. Hospitalstidende 1925, 267-302. 19) Bjarnhéðinsson, Sæmundur. Skýrsla um heil- brigðisástandið í holdsveikraspítalanum I Laug- arnesi o.fl. árin 1898 og 1899. Reykjavík 1900.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.