Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1984, Page 33

Læknablaðið - 15.08.1984, Page 33
LÆK.NABLADID 195 dæmast jákvæð dreifast yfir allstórt bil með tilliti til styrks viðtakanna. Flest sýni eru með minna en 80-100 fmól/mg, en nokkur hafa greinst með mun hærri gildi. Tafla III sýnir niðurstöður samanburðar- rannsóknar sem gerð var við Fibiger Labora- tory í Kaupmannahöfn. Mjög góð samsvörun reyndist á ER mælingu og góð á PR mælingu varðandi jákvæðni. Nokkur munur var þó á magni (tafla III). Fylgnistuðull (r) milli rann- sóknanna reyndist 0,997 fyrir ER og 0,971 fyrir PR. í töflum IV og V eru borin saman sýni úr konum á frjósemisskeiði og konum sem voru af frjósemisskeiði. Niðurstöður voru á þá leið að fleiri sýni voru jákvæð úr konum á frjó- semisskeiði heldur en hinna (83 %/72 % fyrir ER, en 75 %/55 % fyrir PR). Hins veg- ar reyndist magn viðtaka að jafnaði minna í sýnum úr konum á frjósemisskeiði en hinna. Samanburður var gerður á sýnum eftir því hvort þau voru tekin með biopsiu eða mast- ectomiu (töflur VI og VII). Reyndist vera mun- ur á vægt jákvæðum sýnum (<50 fmól/mg) þ.e. færri voru jákvæð í hópi sýna teknum við mastectomiu. Gilti þetta bæði um ER og PR. Ekki var hins vegar sjáanlegur munur á mjög jákvæðum sýnum þ.e. með gildi yfir 50 fmól/mg. í töflu VIII er þetta sýnt fyrir báða viðtakana. Par kemur fram að sýni sem hafa báða viðtaka eru hlutfallslega færri í flokki mastectomiusýna, og í þeim flokki eru einnig fleiri einungis með annan viðtakann. Milli hópanna var hins vegar svipuð tíðni á sýnum sem voru ER-PR~. UMRÆÐA Fjöldi jákvæðra sýna (tafla I) er, samkvæmt okkar niðurstöðum, svipaður því sem aðrir greint frá (1) og því má gera ráð fyrir að tíðni ER og PR í brjóstakrabbameini sé svip- uð hér á íslandi og í öðrum löndum. Pó ber að geta þess, að aðferðir eru nokkuð mismunandi milli rannsóknastofa og alþjóð- lega stöðlun vantar. Samkvæmt samanburðar- rannsókn okkar við Fibiger Laboratory (tafla III) var nokkur munur á magni viðtakanna, aðallega þó á magni PR, en slíkt er ekki óalgengt og ýmsar skýringar hafa komið fram (9). Samsvörun var þó allgóð og ekki er munur á hvernig sjúklingar myndu dæmast með tilliti til svörunar við hormónameðferð út frá þess- um niðurstöðum. Áreiðanleiki mælinganna telst því góður. Niðurstöður töflu I og töflu II skoðast sem flokkun á sjúklingum með tilliti til þess hverjar líkur eru á að þeir svari hormónameð- ferð. Erlendar rannsóknir, þar sem notuð hefur verið sama mælingaraðferð og hér, greina frá því, að æxli með ER + PR+ láti undan hor- mónameðferð í u.þ.b. 75% tilvika, ER+PR- í 33 % tilvika, ER-PR+ i 33 % tilvika, en ER- PR- einungis í 9 % tilvika (1). Ekki hefur enn verið talið tímabært að bera niðurstöður mælinganna saman við árangur hormónameð- ferðar hér á íslandi en það ætti að verða í náinni framtið. Niðurstöður mælinga á meinvörpum (tafla II) eru hér samhljóða niðurstöðum annarra (7) þ.e. fleiri sýni eru þar neikvæð heldur en í frumæxlum. Petta eru þó e.t.v. of fá sýni til að geta talist tölulega marktækt. Einnig ber að hafa í huga, að frumæxli þessara meinvarpa voru ekki mæld nema í 8 tilfellum. I þessu sambandi má geta þess, að sýnt hefur verið fram á að sé mæling á frumæxli neikvæð, eru meiri líkur á að sjúklingur fái meinvörp eða »recidiv« og það gerist fyrr en ella (»disease free interval« er styttra) (2, 3, 4). Neikvæð æxli vaxa einnig hraðar og eru minna sérhæfð (15). Þannig virðist varnar kerfi líkamans síður ráða niðurlögum þeirra Table IV. Menopausal status and presence of ER in primary breast cancer. ER status Premenopausal Postmenopausal Negative 6/35 : 17 % 31/110 :28 % Positive <50 fmol/mg 24/35 :69 % 35/110 :32 % Positive >50 fmol/mg 5/35 :14 % 44/110 :40 % Total positive 29/35 :83 % 79/110 : 72 % Table V. Menopausal status and presence of PR in primary breast cancer. ER status Premenopausal Postmenopausal Negative 7/28 :25 % 44/98 :45 % Positive <50 fmol/mg 10/28 :36 % 24/98 :24 % Positive >50 fmol/mg 11/28 :39 % 30/98 : 31 % Total positive 21/28 : 75 % 54/98 : 55 %

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.