Læknablaðið - 15.08.1984, Page 58
212
LÆKNABLAÐIÐ
mynd 3. Einnig eru á myndinni 10 % og 90 %
»fraktíl« til að gefa til kynna dreifinguna.
í þessari grein hafa verið kynntar nið-
urstöður af könnun á þyngd, lengd og ummáli
höfuðs hjá íslenskum nýburum. Eins og vænta
mátti reyndist þyngdin vera öruggasti mæli-
kvarðinn á stærð barnsins, enda hefur ávallt
verið lögð mest áhersla á skráningu hennar.
Hins vegar er þyngdin ekki einhlítur mæli-
kvarði á á þroska nýburans. Gott dæmi um
það eru léttustu börnin. Mælingar á lengd og
ummáli höfuðs eru ekki heldur einhlítur mæli-
kvarði á þroskann, og þar við bætist meiri
ónákvæmni í mælingum, eins og áður segir.
í næstu grein verða kynnt vaxtarrit fyrir
íslenska nýbura.
HEIMILDIR
1) Gunnlaugur Snædal o.fl.: Fæðingar á íslandi
1972-1981, 9. grein: Lengd meðgöngu. Lækna-
blaðið, nóv. 1983.
2) Födsler i Norden. Medicinsk födselsregistrering
1979. NOMESKO, Reykjavík 1982.
3) Gunnar Biering o.fl.: Fæðingar á fslandi 1972-
1981, 10. grein: Meðganga og burðarmálsdauði.
Nokkrir áhættuþættir. Læknablaðið, des. 1983.