Læknablaðið - 15.10.1984, Blaðsíða 9
LÆK.NABLADIÐ
249
Mynd 1. Medferd á lærhnútubrotum með Ender-
nöglum.
Fjórtán sjúklingar fundu fyrir minni háttar
óþægindum frá hné eftir að brotin voru gróin
og aðrir ellefu sjúklingar kvörtuðu um meiri
háttar ópægindi. í fimmtán tilvikum voru
naglarnir dregnir eftir að brotin voru gróin
vegna óþæginda frá hné. Naglarnir sigu niður
hjá átta sjúklingum, þannig að stöðugleiki
brotsins skertist. Hjá aðeins einum pessara
sjúklinga voru efri naglaendarnir sveigðir
fram á við, áður en naglarnir voru reknir inn.
Allir pessir sjúklingar voru upphaflega negldir
með premur nöglum. Hjá tveimur peirra
færðist brotið úr skorðum (varusskekkja), en
vegna hjartasjúkdóms og almenns lélegs
ástands var ekki mögulegt að gera aðra
aðgerð og greru brotin með áðurnefndri
skekkju og styttingu.
Hinir sex sjúklingarnir voru skornir upp á
nýjan leik. Vegna dreps á lærleggshaus fékk
einn peirra gerfilið (Austin-Moore). Hjá öðr-
um sjúklingi voru Endernaglarnir fjarlægðir
og brotið fest með vinkilspöng að hætti AO.
Hjá hinum fjórum sjúklingunum var fjórða
naglanum bætt við eftir að hinum premur
hafði verið hagrætt.
í fjórum tilvikum gengu naglarnir yfir mörk
beins og brjósks í mjaðmarlið, par af mjög
smávægilega í premur tilvikum. Ekki virtist
petta hafa nein áhrif á lokaniðurstöðuna.
Alvarlegir fylgikvillar, svo sem áverki á
lærslagæð eða brot á neðri enda lærleggs (7)
urðu engir.
UMRÆÐA
Meðferð á lærhnútubrotum með Endernögl-
um hefur verið talin hafa ýmsa kosti fram yfir
eldri aðgerðir, par sem notaður var nagli og
spöng (3).
Helztu kostirnir hafa verið taldir, að að-
gerðin sé tæknilega einföld og fljótgerð. Talið
hefur verið, að stytta mætti aðgerðartímann
niður í 20-30 mínútur (7). Sýkingarhætta í broti
lítil (2, 8), par sem naglarnir eru reknir inn
langt frá brotstað. Blóðtap hefur verið talið
óverulegt og sakir lítillar röskunar vefja,
einkum vöðva, hefur fótaferð verið talin auð-