Læknablaðið - 15.10.1984, Qupperneq 27
LÆK.NABLAÐIÐ
257
eins og sjá má á mynd 13. Það er athyglisvert
fyrir bæði kyn að Asíubúar eru þeir hópar sem
skera sig helzt úr með lágu nýgengi (11, 13).
Að auki hafa negrar, bæði í Afríku (4) og
Ameríku (12, 19, 20) lágt nýgengi pessara
brota.
Hlutfallið konur/karlar er í reykvíska hópn-
um ívíð hærra en í samanburðarhópunum (3,
9) en pó sambærilegt við flestar kannanir af
vesturhveli jarðar par sem hlutfallið er yfirleitt
3,1-3,5. I könnunum frá Austurlöndum og
Afríku er hlutfallið hins vegar mun lægra (2, 4,
11).
Tafla III sýnir að enginn teljandi munur er á
tíðni cervical og trochanter brota meðal karla,
en meðal kvenna eru rúmlega prjú brot af
hverjum fjórum cervical og er munurinn
áberandi í öllum aldurshópunum. Þetta er
svipað og niðurstöður Alfframs (5) í Malmö
1949-1961, par sem 55 % karlanna höfðu
cervical brot en 65 % kvennanna. í Rochester
Fjöldi sj. 381,3
/10.000 'f'
/ár
Aldurs-
hópar
Mynd 2. Fjöldi sjúklinga/10.000/ár med brot í lær-
leggshálsi 1973-1981.
(16) er munurinn milli cervical og trochanter-
brota miklu minni en í Reykjavík. Sumt bendir
til að pess að orsakir pessara brota kunni að
vera mismunandi (21).
Aldursdreifing sjúklinganna sýnir að meðal
kvenna eru 43,5 % 80 ára og eldri, 32,3 % 70
til 79 ára og 15.7 % 60 til 69 ára, en meðal
karla eru samsvarandi tölur í sömu röð 37.7 %,
27.5% og 16.8%. Þetta eru svipaðar niður-
stöður og hafa fengist í könnunum t.d. í Malmö
(5) og New York (22).
Mynd 3 sýnir hversu miklu oftar minni
háttar áverkar orsaka brotin en meiri háttar
áverkar, en smæð hópsins er slík, að ekki er
hægt að bera saman tíðni meiri háttar áverk-
anna á milli aldurshópanna. í pví sambandi má
benda á að rannsóknir í Malmö 1951-1960 (5,
7) sýndu að í yngri aldurshópunum og sérstak-
lega meðal karla er meiri háttar áverki mun
algengari en meðal eldri karla og allra kvenna.
Meðal Gyðinga er minni háttar áverki orsök
87.6 % brotanna í konum, en 78,8 % í körlum
(2), en í Singapore orsakast 63 % pessara
brota af minni háttar áverka (11).
Umferðarslys orsaka 6.2 % pessara brota
meðal reykvískra karla en 2.6 % brotanna
meðal reykvískra kvenna. Er pað verulega
minni munur milli kynja en í Malmö (5) par
sem sambærilegar tölur voru 3.2 % fyrir konur
og 29 % fyrir karla.
Mynd 10 sýnir að fleiri brotna hér á
vetrarmánuðum. Telja verður líklegt að hálk-
an eigi par einhvern hlut að máli. Rétt er að
benda á niðurstöður könnunar í Dundee 52-54
(23), sem sýndi einnig meiri tíðni pessara brota
yfir vetrarmánuðina. Þar kemur pó jafnframt
Fjöldi
Aldurshópar
Mynd 3. Brotum í lærleggshálsi 1973 og 1979 skipt
eftir stærdargrádu áverka.