Læknablaðið - 15.10.1984, Síða 28
258
LÆK.NABLAÐID
fram að þær tvær vikur sem flestir brotnuðu,
brotnaði enginn sjúklinganna utandyra.
Niðurstöður þessarar könnunar geta bent til
þess að tíðni brota í lærleggshálsi fari vaxandi
í Reykjavík og er það hliðstætt niðurstöðum
margra erlendra kannana (5, 10, 24), en þó ekki
allra (25).
Hryggsúla
Rannsóknin sýnir að í Reykjavík greindust
1973-1981 talsvert fleiri konur með brot í
hryggsúlu en karlar og er hlutfallið konur/karl-
ar= 1,6. Pessu er öfugt farið í tveimur enskum
könnunum frá Oxford (8) og Dundee og
Oxford (17), þar sem karlar eru mun fleiri og
nlutfallið konur/karlar = 0,3. Á hinn bóginn eru
konur í meirihluta í könnun sem gerð var á
elliheimili fyrir Gyðinga í Philadelþhia (9), en
þar voru reyndar athugaðir 136 einkennalausir
einstaklingar, sem við rannsókn reyndust hafa
brot í hryggsúlu. Þannig ætti einnig að vera
Ijóst að okkar niðurstöður varðandi tíðni
hljóta að vera of lágar, því bæði er að sumir
eru einkennalausir þrátt fyrir samfall á hrygg-
jarlið og einnig hitt að sumir, sem fá
»slæmsku« í bakið eftir lítinn áverka leita, lík-
íega ekki læknis auk þess sem hluti þessara
Fjöldi
Mynd 4. Fjöldi sjúklinga með brot í hryggsúlu 1973-
1981.
brota greinist líklega utan Slysadeildar og er
því ekki talinn með.
Pessi könnun sýnir tvo hópa, þ.e. yngra
fólkið sem kemur eftir umferðarslys og aðra
meiri háttar áverka og svo eldra fólkið,
sérstaklega konur eftir fimmtugt, þar sem
minni háttar áverkar eru ráðandi. Líklega er
það aðallega seinni hópurinn sem er van-
metinn hér og einmitt sá hópur þar sem
tengsl brotanna við osteoporosis eru hvað lík-
Iegust.
F ramhandleggur
Tíðni og aldursbundið nýgengi framhand-
leggsbrota (myndir 7 og 8) samanborið við
aðrar kannanir, sýnir að reykvísku ferlarnir
eru í aðalatriðum eins og sambærilegir ferlar í
öðrum könnunum, þ.e. toppar hjá báðum
kynjum í lægstu aldurshópunum, síðan lægð
hjá báðum kynjum og hjá körlum helzt hún
ævina á enda, en hjá konum vex tíðnin
verulega eftir að 45 ára aldri er náð með
hámark um og eftir sextugt. Hins vegar er
nýgengi þessara brota í Reykjavík þrefalt til
fimmfalt hærra en í hinum könnununum, frá
Svíþjóð, Englandi og Bandaríkjum N-Ameríku
(6, 7, 8, 17, 26). í fjærenda framhandleggs voru
Fjöldi sj.
/10.000
Mynd 5. Fjöldi sjúklinga/10.000/ár mcd brot í
hryggsúlu 1973-1981.