Læknablaðið - 15.03.1987, Page 21
LÆKNABLAÐIÐ
83
NABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Læknafclag íslands og
Læknafélag Reykjavíkur
L|R
73. ARG.
MARS 1987
SJÓNBÆTANDI AÐGERÐIR MEÐ
GERVIAU G ASTEINUM
Dreraðgerðir hafa breyst mjög mikið á síðustu
árum og ígræðsla gerviaugasteina inni í auga
hefur breytt ábendingum fyrir þessar aðgerðir
verulega. Þær eru gerðar vegna minnkandi
tærleika augasteins, sem er fyrst og fremst kvilli
fullorðins fólks og mjög algengur frá 70 ára aldri.
Samkvæmt skilgreiningu, sem notuð var í
Framingham-könnuninni í Bandaríkjunum (1),
reyndust í rannsókn er höfundur gerði ásamt
öðrum á Austfjörðum (2), meira en fjórði hver
einstaklingur um sjötugt með drerbreytingar,
tæplega 60% af þeim sem voru milli sjötugs og
áttræðs og allir 83 ára og eldri. Svipaðar
niðurstöður er að finna í rannsókn úr
Borgarneslæknisumdæmi (3). Ekki þurfa allir
þessir einstaklingar á aðgerð að halda, þó sjón sé
nokkuð skert.
Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt, að þeim
tegundum skurðaðgerða hjá öldruðum sem mest
hefur fjölgað á síðustu árum eru augnaðgerðir og
stórar liðaaðgerðir. Hefur fjöldi beggja
tvöfaldast til þrefaldast (4). Fyrir tíma
gerviaugasteina var fólk yfirleitt ekki skorið upp,
fyrr en betra augað var orðið mjög lélegt, vegna
þess að viðeigandi gleraugu ollu um 30% stækkun
þess, sem fólk sá og því var meðal annars ekki
unnt að nota augun saman þar sem drer hafði
verið fjarlægður úr öðru auga, en ekki hinu.
Snertilinsur gerðu þetta þó mögulegt í sumum
tilvikum, en með notkun gerviaugasteina hvarf
þetta vandamál.
Skipta má tegundum gerviaugasteina í þrennt
eftir festingu og staðsetningu þeirra í auga, þ.e.
augasteinar festir í forhólfi augans, augasteinar
festir í lithimnu og augasteinar festir fyrir aftan
lithimnu. Árið 1981 var byrjað að nota
forhólfsgerviaugasteina á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri og árið 1982 var byrjað að nota
gerviaugasteina festa í lithimnu á
Landakotsspítala og skömmu síðar einnig þá
fyrstnefndu, en um áramótin 1983-4 var farið að
nota augasteina festa fyrir aftan lithimnu á
Landakotsspitala. Þeim er komið fyrir á sama
stað og upprunalega augasteininum og raunar
komið fyrir í þeim hluta poka þess (capsula), sem
umlykur augasteininn og er skilinn eftir í þessari
aðgerð. Hún kallast því aðgerð til að fjarlægja
augastein án poka (extracapsular) meðan að við
fyrrnefndu aðgerðina er augasteinninn
fjarlægður ásamt umlykjandi poka
(intracapsular). Dreraðgerðir þar sem
augasteinninn er fjarlægður án poka ásamt með
ígræðslu gerviaugasteins eru nú allsráðandi
austan hafs og vestan (5) svo og hefur það einnig
gilt á Landakoti síðan á árinu 1984. Árið 1985
voru um 200 gerviaugasteinar græddir í augu á
Augndeild Landakotsspitala, þar af ein aðgerð
hjá sjúklingi sem dvaldi utan sjúkrahúss, 31 á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og 8 annars
staðar (6), þannig að um eina ígræðslu á hverja
1.000 íbúa er að ræða á ári, sem er svipað og í
Noregi, en minna en í Svíþjóð (7). Árið 1985 var á
íslandi framkvæmd u.þ.b. ein aðgerð á hverja 84
íbúa eldri en 70 ára, en sá hópur, sem á aðgerð
þarf að halda, er stækkandi hér á landi eins og í
nágrannalöndunum og einnig eru kröfur þessa
hóps um góða sjón nú meiri en áður.
Rétt er að minnast á algengustu orsök alvarlegrar
sjónskerðingar á íslandi, þ.e. ellirýrnun í miðgróf
sjónu (8). Fyrir tilkomu gerviaugasteina voru
dreraðgerðir hjá þessum hópi fólks oft ekki
framkvæmdar, þar sem árangur var slakur og í
ýmsum tilvikum olli árangur verulegum
vonbrigðum. Var það m.a. vegna þess, að
sjónsvið sem fékkst með gleraugnanotkun eftir
slíka aðgerð var lítið og skemmdin í augnbotni
fyllti að mestu upp þetta sjónsvið. Það er nú ljóst,
að með ígræðslu gerviaugasteina, sem gefa stærra
sjónsvið en gleraugu gerðu, fæst oftast
þokkalegur árangur sem gerir þessu fólki kleift að
klára sig sjálft og jafnvel að sleppa við lögblindu,
þ.e. fá sjón betri en 6/60.
Fjölgun í elstu aldurshópum og víkkun ábendinga
hefur orðið til þess, að víða á Vesturlöndum hafa
myndast biðlistar jafnvel 2-3 ár, til að fá þessa
aðgerð framkvæmda (9). Er það óheppilegt, þar
sem þessi aðgerð stórbætir sjón og gerir hana allt
að eðlilega á mjög skömmum tíma í fjölda tilfella,
bætir þannig lífsgæði og sparar fjármagn til