Læknablaðið - 15.03.1987, Page 43
LÆKNABLAÐIÐ
99
Vestfjörðum, af Suðurnesjum og reyndar
allstaðar af landinu.
Á nærsvæðinu eru búsettir um 20 þúsund manns.
Norðurlandið allt, sem FSA þjónar sem
miðsjúkrahús, hefur milli 30 og 40 þúsund íbúa.
Ekki hefur tekist að fá FSA ákveðið
upptökusvæði. Fyrir 15 árum, þegar hafist var
handa við stækkun sjúkrahússins, fengust
stjórnmálamenn og heilbrigðisyfirvöld ekki til
þess að ákveða þjónustusvæðið. Sagt var að
íslendingar sættu sig ekki við að dregin yrðu
landamæri innanlands, þannig að ákveðið svæði
falli undir ákveðið sjúkrahús.
Læknar FSA bjóða öllum landsmönnum
þjónustu sína og telja hana sambærilega því sem
hin stóru sjúkrahúsin veita, Landakot,
Landspitali og Borgarspítali. Tilveruréttur FSA
byggist á þvi að FSA bjóði jafn góða þjónustu og
jafn greiðlega af hendi innta og stóru sjúkrahúsin
í Reykjavík.
Nokkuð er misjafnt eftir deildum hve sjúklingar
koma víða að. Til bæklunardeildar leita sjúklingar
frá höfuðborgasvæðinu vegna þess hve biðlistar
eru langir á sjúkrahúsunum í Reykjavík. FSA
hefur sérstaklega staðið betur að vígi en
sjúkrahúsin í Reykjavík varðandi
gerviliðaaðgerðir. Fleira ræður læknavali
sjúklinga og má þar nefna persónuleg tengsl
lækna sem ráða oft meiru en nokkuð annað.
FSA hefur sjúklinga á öllum deildum frá öllu
Norður- og Austurlandi. Tiltölulega fáir
sjúklingar koma úr Skaftafellssýslum enda eru
samgöngur greiðari þaðan til Reykjavíkur en
norður.
Almennt hefur sjúkrahúsið þó nokkra aðsókn úr
öllum byggðarlögum landsins, meðal annars úr
fjölmennasta hreppnum, Reykjavík.
Sjúkrahúsið sinnir sjúklingum á þjónustusvæðinu
á ýmsan annan hátt en með beinum innlögnum.
Læknar barnadeildar fara reglulega um
Norðurland. Bæklunarlæknar fóru einnig út um
sveitir á meðan þess var kostur. Sjúkrahúslæknar
vildu gjarnan veita þessa þjónustu í meira mæli en
gert er en til þess skortir mannafla.
Nágrannasjúkrahúsin eru mjög góð og njóta
þjónustu sérstaklega vel menntaðra handlækna
sem sinna mörgum verkefnum í
handlækningafræði sem ekki þurfa að styðjast
við margar hliðargreinar. Þess vegna er minnst
þörf fyrir lækna handlækningadeildar að fara í
nágrannabyggðarlögin. Fjórðungssjúkrahúsið
getur tekið við þegar aðstæður þrjóta annars
staðar, vegna þess að FSA hefur öfluga