Læknablaðið - 15.03.1987, Síða 46
102
LÆKNABLAÐIÐ
verið fluttar til, en allt eins vegna viðgerða og
endurbóta.
Það hefur ekki lítið að segja fyrir íbúa svæðisins
að vita, að á FSA er alltaf hægt að ganga að vísri
þjónustu.
DEILDIR FSA
Á FSA eru starfræktar eftirtaldar deildir:
handlækningadeild, lyflækningadeild,
kvennadeild, barnadeild, geðdeild,
bæklunardeild, svæfingadeild, gjörgæsludeild,
röntgendeild, rannsóknastofa í blóðmeina- og
efnameinafræði, rannsóknastofa i
liffærameinafræði, augnlækningadeild, háls- nef-
og eyrnadeild, auk deilda sem eðli málsins
samkvæmt eru ekki bundnar ákveðinni sérgrein
svo sem skurðdeild, göngudeild með
sérfræðimóttöku, slysadeild og
blóðgjafaþjónusta.
í samræðunum var sérstaklega minnst á nokkur
atriði varðandi sumar deildanna.
Röntgendeild: Sigurður Ólason yfirlæknir á
röntgendeild, sagði grundvallaratriði að á FSA
verði hægt að framkvæma allar
röntgenrannsóknir sem framkvæmdar eru á
sjúkrahúsunum í Reykjavík. Þess vegna hefur
deildin verið undirbúin með það fyrir augum að
þar verði meðal annars fullkomin
tölvusneiðmyndatæki. Hins vegar vantar sárlega
viðbótarhúsnæði. Deildin hefur átt mjög góða
samvinnu við röntgendeildir Borgarspítala og
Landspítala og notið sérfræðiaðstoðar þaðan,
meðan beðið er eftir auknum mannafla og
húsnæði.
Röntgenrannsóknum hefur fjölgað mjög að
undanförnu og á síðustu árum hafa
Siguröur Ólason yfirlceknir á röntgendeild, Magnús
Stefánsson sérfræðingur á barnadeild og Vignir
Sveinsson skrifstofustjóri
sónarskoðanir bæst við. Eins og á öðrum
röntgendeildum landsins hafa rannsóknirnar
breyst. í stað magarannsókna, ristilrannsókna og
gallvegarannsókna er nú meira um ómskoðanir
og þeim mun fjölga vegna þess að á mörgum
sviðum koma ómskoðanir í stað
röntgenrannsókna. Sigurður tók dæmi um
meðfædd liðhlaup í mjöðm sem hægt er að greina
með ómskoðun. Þetta er mjög einföld aðgerð sem
hægt er að endurtaka frá því barnið er nýfætt án
þess að skaða það á nokkurn hátt.
Sigurður gat þess að sökum aldurs ætti hann ekki
eftir nema eitt eða tvö ár i starfi. Draumsýn hans
væri enn sú að röntgendeildin nýja verði fullgerð
sem fyrst, þótt hann sé ekki svo bjartsýnn að álíta
deildina verða fullfrágengna og tekna í notkun
áður en hann hverfur frá sjúkrahúsinu.
Lyflækningadeild hefur breyst töluvert á
undanförnum árum. Þar veldur mestu að læknar
sem hafa starfað lengi á FSA og unnið merkt starf
hafa látið af störfum og aðrir komið í þeirra stað.
Einnig hafa nýjar sérgreinar bæst við og eru að
bætast við.
Þorkell Guðbrandsson dr.med., nýráðinn
yfirlæknir lyflækningadeildar, taldi að á
lyflækningadeild FSA væri vaxtarbroddur sem
þyrfti að þróa áfram. Lyflækningadeild verður að
geta sinnt megingreinum lyflæknisfræðinnar eins
og gert er á öðrum svæðissjúkrahúsum, einnig
verður hún að geta veitt alla bráða þjónustu í
algengustu og alvarlegustu sjúkdómum og hafa
góð móttökuskilyrði fyrir bráðveika sjúklinga.
Þess vegna er nauðsynlegt að hafa góða samvinnu
við gjörgæsludeild.
Trúlega verður að sækja með minni sérgreinar á
aðra staði, má þar sérstaklega nefna
heilaskurðlækningar og aðrar greinar sem ekki
geta vaxið á Akureyri vegna mannfæðar.
Það er erftt að ákvarða hvar sjúkrahús á að setja
takmörkin. Þjónusta sem mönnum fannst áður
að ekki væri hægt að veita á Akureyri, vegna
fámennis eða kostnaðar, hefur verið tekin upp og
gengið vel, þannig að spurningin snýst oft um það
að þora að hefjast handa.
Bæklunardeild: Halldór Baldursson yfirlæknir á
bæklunardeild, sagði skipta miklu fyrir
bæklunardeildina hve góð samvinna hefur verið
við lækna í Reykjavík. Meirihluti starfandi
bæklunarlækna á íslandi hefur unnið á FSA og
veit þess vegna vel hvernig ástandið er þar. Án
þess að verða fyrir nokkrum þrýstingi frá
stjórnendum sjúkrahúsanna hafa