Læknablaðið - 15.03.1987, Síða 52
108
LÆKNABLAÐIÐ
bindingu utan Reykjavíkur. Það fólk er ekki
tilbúið að rjúka suður.
Tveir möguleikar eru fyrir hendi á tengslum
háskólakennslu á Akureyri við Háskóla íslands.
Flestir hafa verið þeirrar skoðunar að heppilegast
sé að háskólabraut á Akureyri væri undir stjórn
Háskóla íslands og námsbraut í hjúkrun á
Akureyri væri skipulagslega tengd námsbraut í
hjúkrun innan Háskóla íslands. Aðrir eru þeirrar
skoðunar að þetta ætti að verða sem sjálfstæðast
og þróunin hlýtur að verða sú þegar fram líða
stundir. En skipulagsleg tengsl við Háskóla
íslands þegar í upphafi geta komið í veg fyrir að
almannarómur flokki hjúkrunarmenntun í
landinu í fyrsta og annan flokk.
Kennsla í hjúkrunarfræði er jafn mikið atriði
fyrir sjúkrahúsið og kennsla í læknisfræði.
Sjúkrahús af þeirri stærð og víðfeðmi sem er á
Akureyri stenst ekki tímans tönn nema kennsla
fáist stunduð þar.
Þorkell Guðbrandsson taldi einsýnt að erfitt yrði
að viðhalda góðri læknisþjónustu í framtíðinni
yrði ekki bætt úr hjúkrunarfræðingaskortinum.
Þess vegna verður til heilla að fjölga
hjúkrunarfræðingum hvar sem þeir eru
menntaðir.
Þegar farið var að kanna hvaða kennslukraftar
væru á Akureyri fundust fræðingar í flestum
greinum. Þar eru doktorar í búvísindum sem
kunna efnafræði og lífefnafræði,
lífefnafræðingar og meira að segja doktor í
kjarneðlisfræði, þótt það varði ekki námsbraut í
hjúkrun.
Veiki hlekkurinn er að kennara vantar í
hjúkrunarfræðum, en það hlýtur að vera að hægt
að útvega þá og það verður að leysa í samvinnu
við námsbrautina í Reykjavík.
Nú mun einhver hreyfing í þá átt að hæfa
hjúkrunarkennara frá Hjúkrunarskóla islands til
þess að stunda kennslu á háskólastigi. Til þessa
hafa þeir leitað i önnur störf, þar sem þeir hafa
ekki þótt gjaldgengir til kennslu á háskólastigi.
Þegar grannt er skoðað virðast flest rökin með og
móti stofnun háskólabrautar í hjúkrun á
Akureyri býsna keimlík þeim sem notuð voru
fyrir 60 árum þegar talað var um gagnsemi eða
óþarfa þess að stofna menntaskóla á Akureyri.
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA SEM VEITT ER FRÁ
REYKJAVÍK
Ein er sú grein handlækninga sem læknar á FSA
leita töluvert með til Reykjavíkur og það eru
heilaskurðlækningar. Almennt þarf ekki að senda
slys til Reykjavíkur nema þar sem um er að ræða
heilaslys sem þarfnast sérhæfðrar meðferðar og
sérstaklega ef þörf er á greiningu með
tölvusneiðmyndatæki.
Menn voru sammála um að samskipti við
sjúkrahúsin í Reykjavík ganga ákaflega vel. Þau
hafa þjónað vel með þá hluti sem ekki hefur verið
hægt að leysa á Akureyri.
Sérfræðingar hafa einnig komið norður um
árabil. Þorkell nefndi að Þórir Helgason hafi
komið um árabil og sinnt sykursjúkum. Fyrir einu
ári yfirtóku læknar á FSA þá þjónustu í samráði
við hann og hefur gengið vel. Árni Kristinsson
hjartalæknir kom einnig um árabil, þrisvar til
fjórum sinnum á ári og skoðaði hóp sjúklinga.
Læknar á FSA hafa tekið þá þjónustu í sínar
hendur og gengur vel. Meinafræðingar komu
áður í reglulegar heimsóknir, þess er ekki lengur
þörf.
Ennþá koma taugasjúkdómafræðingar frá
Landspítala reglulega og skoða hóp sjúklinga.
Læknar á FSA hringja gjarnan til þeirra og leita
ráða. Vel má vera að næst verði þessi þjónustu
yfirtekin.
Samstarf við krabbameinslækna í Reykjavík er
gott. Þeir koma stundum norður, en Þorkell taldi
ýmis ljón á veginum fyrir því að
krabbameinslæknir geti sest að á Akureyri.
Krabbameinslækningar þarfnast mikillar
rannsóknaaðstöðu, tölvusneiðmyndatæki,
gammamyndtæki og geislalækningatæki þurfa að
vera til, þannig að krabbameinslækningar fái
notið sín fullkomlega.
Þetta á þó einungis við um
krabbameinslækningar í norrænum skilningi, en
hann á kannski rætur að rekja til gamalþýskrar
skipulagningar allra hluta. Gauti lýsti þeirri
skoðun sinni að ekki aðeins hafi sérfræðingar í
lyflækningum krabbameina (og ónæmisfræði
þeirra og hugsanlega lækningum á því sviði) næg
verkefni á Akureyri núna, heldur væri knýjandi
nauðsyn á því að ráða slíkan sérfræðing innan
tíðar. Stundum virtist gleymast að flestar
krabbameinslækningar í strangri merkingu
orðsins eru skurðlækningar og geislameðferð
verður sjaldan beitt til lækninga í þeim skilningi.
Magnús Stefánsson gat þess í sambandi við
barnageðlækningar, að gott samstarf hefur verið
við barnageðdeildina í Reykjavík. En hún er bæði
of lítil til að þjóna öllu landinu og eins er meðferð
barna sem eiga við geðræn vandamál að stríða