Læknablaðið - 15.09.1987, Qupperneq 16
262
LÆKNABLAÐIÐ
ÚR LÖGUM LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
Samband svæðafélaga lækna, svo og félög
íslenzkra lækna, sem af eðlilegum ástæðum eru
ekki i svæðafélögum, heitir Læknafélag Islands.
Tilgangur félagsins er:
1. Að efla hag og sóma hinnar íslenzku
læknastéttar og auka kynni og stéttarþroska
félagsmanna.
2. Að stuðla að aukinni menntun lækna og glæða
áhuga þerra á því, er að starfi þeirra lýtur.
3. Að efla samvinnu lækna um allt, sem horfir til
framfara í heilbrigðismálum á íslandi.
CODEX ETHICUS
Félagið hefur sérstakar Siðareglur, Codex
Ethicus, sem samdar eru með hliðsjón af
siðareglum Alþjóðafélags lækna.
í lögum Læknafélags íslands segir, að stjórn þess
og stjórnir aðildarfélaganna skuli hafa eftirlit
með því, að félagsmenn þeirra hlýði Codex
Ethicus, lögum og samþykktum Læknafélags
íslands. Verði stjórn aðildarfélags vör við
stórfelldar misfellur í þessum efnum, tilkynnir
hún það stjórn L. í. eða siðanefnd. Stjórn L. í.
skal vara félagsmenn sína og viðkomandi
atvinnurekendur við stöðum eða embættum, sem
hún telur varhugaverð eða óaðgengileg fyrir
lækna. - Enginn félagsmaður má sækja um
stöður eða embætti, sem varað hefur verið við. -
Enginn félagsmaður má sækja um eða taka við
stöðu eða embætti, nema þau hafi verið auglýst til
umsóknar með minnst fjögurra vikna fyrirvara.
Ef L. í. eða aðildarfélag á í deilu við
sjúkrasamlag, Tryggingastofnun ríkisins,
bæjarfélag, ríki eða aðra hliðstæða aðila, getur
enginn félagi leyst sig undan þeim skyldum, sem
deilan leggur félagsmönnum L. í. á herðar, með
því að segja sig úr félaginu.
SIÐANEFND
Innan Læknafélags íslands starfar siðanefnd.
Hlutverk hennar er
að hafa eftirlit með og stuðla að því, að
siðareglur, lög og samþykktir félagsins séu hafðar
í heiðri,
að vera læknum til ráðuneytis um málefni, er
varða samskipti lækna innbyrðis um siðareglur
lækna,
að kynna læknum og læknanemum siðareglur,
lög og samþykktir félagsins,
að fjalla um meint brot á siðareglum, lögum og
samþykktum félagsins.
Siðanefnd tekur til umsagnar eða úrskurðar, eftir
því sem við á, erindi og umkvartanir frá
sjúklingum og aðstandendum þeirra, læknum og
öðru heilbrigðisstarfsfólki, stjórnum L. í.
svæðafélaga, sérgreinafélaga og
heilbrigðisstofnana, eða siðanefndum þeirra, ef
til eru, og heilbrigðisyfirvöldum.
Nefndin fjallar einnig um fullyrðingar, sem fram
kunna að koma í fjölmiðlum, um meint misferli
einstakra lækna og hópa lækna.
Rísi ágreiningur um verksvið nefndarinnar, skal
málinu skotið til stjórnar L. í.
í siðanefnd sitja tveir læknar, sem kosnir eru á
aðalfundi L. í. til tveggja ára í senn.
Yfirborgardómarinn í Reykjavík tilnefnir þriðja
mann í nefndina til jafnlangs tíma. Hann skal
vera löglærður og uppfylla skilyrði til að mega
starfa sem dómari. Varamenn skulu vera
jafnmargir, kjörnir á sama hátt og til jafnlangs
tíma. Hvorki aðalmenn né varamenn mega eiga
sæti í stjórn L. í.
Siðanefnd skal fjalla um hvert það mál, sem
henni berst og afgreiða það með eins skjótum
hætti og kostur er hverju sinni. Nefndin heldur
gerðabók um ákvarðanir sínar og þær gerðir sem
hún telur nauðsynlegar. Nefndin skal senda stjórn
L. í. skýrslu um störf sín einu sinni á ári, og
formaður siðanefndar skal skýra stjórninni frá
stöðu mála endranær, óski stjórnin eftir því. Telji
siðanefndin, að tiltekin málefni séu ekki innan
starfssviðs hennar, sendir nefndin málið til
stjórnar L. í.
Nú bregst félagsmaður þeim skyldum, sem
honum ber að inna af hendi, eða brýtur lög
félagsins eða Codex Ethicus, og skal siðanefnd þá
veita honum áminningu, hafi málinu verið til
hennar vísað. Sé um ítrekað brot að ræða, má
gera honum að greiða sekt, og rennur sektarféð til
Ekknasjóðs. Sama máli gegnir, ef félagsmaður