Læknablaðið - 15.09.1987, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ
263
aðhefst eitthvað það, er stjórn L. í. eða siðanefnd
þykir stéttinni ósamboðið, eða hegðar sér
ósæmilega, hvort heldur er í læknisstarfi eða í
sambandi við umsókn, þótt ekki sé um skýlaust
brot á lögum félagsins eða Codex Ethicus að
ræða. Siðanefnd kveður upp slíka úrskurði um
áminningar og sektir og framfylgir þeim.
Úrskurði siðanefndar má skjóta til gerðardóms
skv. Codex Ethicus, enda sé það gert innan
fjögurra vikna frá því, að úrskurður er kveðinn
upp.
Sektir mega nema allt að tvöföldum
mánaðarlaunum viðkomandi læknis, og skulu
greiðast innan þriggja mánaða frá því að þær
hafa verið úrskurðaðar af siðanefnd eða
gerðardómi, hafi úrskurði verið skotið til hans.
Stjórn L. í. getur vísað félagsmanni úr félaginu
fyrir alvarlega vanrækslu skyldustarfa eða
velsæmisbrot, eða fyrir margítrekuð brot, þótt
hvert þeirra um sig varði aðeins sektum.
Ennfremur ef hann neitar að greiða sektir. Það
varðar brottrekstri, ef félagsmaður sækir um
embætti eða stöðu þrátt fyrir bann stjórnarinnar.
Úrskurð stjórnarinnar um brottvísun skal taka
fyrir á næsta aðalfundi L. í. eða fulltrúafundi
(kynna á formannafundi) til staðfestingar eða
synjunar. Staðfesti fundurinn ekki úrskurð
stjórnarinnar, getur hún skotið málinu til
gerðardóms.
Rísi ágreiningur milli lækna innbyrðis, eða milli
læknis og svæðafélags hans, eða L. í. getur hvor
aðilinn sem er, gert siðanefnd grein fyrir þeim
ágreiningi. Siðanefndin skal kynna sér málið, og
leita sátta, en takist sættir ekki, kveður hún upp
úrskurð í málinu. Skal úrskurðum hagað eins og
segir framar í þessari grein. Slíkum úrskurðum
má skjóta til gerðardóms skv. Codex Ethicus,
enda sé það gert innan þeirra tímamarka, sem
nefnd eru.