Læknablaðið - 15.12.1987, Síða 52
460
LÆKNABLAÐIÐ
meðferðaráætlanir um til þess að gera
sjúklingana virkari þátttakendur við meðferðina,
þannig að læknir og sjúklingur geti betur gert sér
grein fyrir því hvort sú meðferð, sem beitt er, er i
samræmi við bestu þekkingu.
Vegna M 20: Áætlun verði gerð að starfsemi og
mönnun heilsugæslustöðva komist i það horf sem
lög gera ráð fyrir. Lögin verði endurskoðuð, sbr.
M 18, og breytt í það horf að fjölga læknum í
heilsugæslu þannig að mönnun H1
heilsugæslustöðva breytist.
Vegna M 21: Skýr skil verði gerð milli
sérfræðistarfa á sjúkrahúsum og utan.
Sérfræðingar í fullu starfi á sjúkrahúsum sinni
ekki sérfræðistarfi utan sjúkrahússins. Sérstakir
læknar verði ráðnir á göngudeildir sjúkrahúsanna
til sérfræðistarfa og verksvið göngudeilda skýrar
ákveðið.
Vegna M 22: Við endurskoðun laga um
heilbrigðisþjónustu verði sérstakt tillit tekið til
endurhæfingarmála.
Vegna M 23: Lög um almannatryggingar verði
endurskoðuð með tilliti til þess að tannlækningar
verði gerðar greiðsluskyldar á sama hátt og
læknisstörf.
Vegna M 24: í reglugerð um sjúkrahús, sbr. M 4,
verði hlutverk svæðissjúkrahúsanna í Reykjavik
og á Akureyri skilgreint sérstaklega. Sérfræðingar
og göngudeildir sjúkrahúsanna í Reykjavík og á
Akureyri verði tengd ákveðnum
heilsugæsluumdæmum og komið verði upp
sérstöku kerfi farandsérfræðinga í þeim
sérgreinum þar sem það er álitlegt.
Vegna M 25: Geðlæknisþjónustan verði
endurskipulögð með tilliti til þess að
heilsugæslustöðvar taki að sér ákveðin verkefni á
því sviði. Áfengis- og fíkniefnameðferð verði
endurskoðuð sérstaklega með tilliti til
samræmingar stofnanaþjónustunnar og
göngudeildarþjónustan verði í svo miklum mæli
sem unnt er flutt inn á heilsugæslustöðvar.
Áfengis- og fíkniefnamál unglinga verði athuguð
sérstaklega.
Vegna M 26: Skil verði gerð milli
öldrunarlækningadeilda og hjúkrunardeilda og
kappkostað að leysa allan hjúkrunarvanda
svæðisbundið. Heimaþjónusta vegna aldraðra og
langvarandi veikra verði skipulögð fyrir landið í
heild með tilliti til þess að nýta sem best allt
hjúkrunarrými.
Vegna M 27: Almannatryggingalög verði
endurskoðuð í heild með sérstöku tilliti til þess að
jafna aðstöðumun fólks í landinu til
heilbrigðisþjónustunnar. Ákvæði um örorkumat
verði endurskoðuð og sett á laggirnar
áfrýjunarnefnd.
Vegna M 28: Lög um lyfjamál og lyfjadreifingu
verði endurskoðuð með tilliti til þess annars vegar
að færa lyfjaafgreiðslu til heilsugæslunnar þar
sem það á við og að ráða lyfjafræðinga að
heilsugæslustöðvum til að sinna lyfjasölu á sama
hátt og annað starfslið heilsugæslu er nú ráðið og
hins vegar til aukins frjálsræðis án þess að slaka á
kröfum um sérþekkingu.
Vegna 29: Löggjöf verði sett eða samningar gerðir
við tryggingafélög um að koma á sérstökum
tryggingum vegna sjúklinga sem hljóta örorku
eða miska vegna lækninga.
Vegna M 30: Gerð verði rammaáætlun vegna
bygginga heilbrigðisstofnana til næstu 10 ára og
ítarleg áætlun til næstu 5 ára.
Vegna M 31: Gera þarf áætlun um mannaflaþörf
í heilbrigðisþjónustunni á öllu sérhæfðu starfsliði
næstu 5 ár og næstu 10 ár miðað við breytingar í
þjóðfélaginu og aldursskiptingu.
Endurskoða þarf námsskrá skóla heilbrigðisstétta
með tilliti til þeirrar áherslu sem leggja þarf á
heilbrigðisfræðslu og heilsuvernd.
Vegna M 32: Fullnægjandi upplýsingakerfi til
eftirlits og mats á heilbrigðisþjónustunni verði
komið á. Sérstök rannsóknaráætlun verði gerð
vegna framkvæmdar þessarar heilbrigðisáætlunar
og jafnframt tekið tillit til áætlana
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna
HFA 2000.
Vegna M 33: Sérstök athugun fari fram á
alþjóðasamstarfi Islands í heilbrigðismálum og
gerð áætlun um framtíðaráform um
áframhaldandi starf.